Færsla bandaríska fjölmiðlamannsins Tuckers Carlson á X um mögulega kjarnorkuárás Bandaríkjanna á Íran dreifðist víða daginn fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum 3. nóvember.
Samkvæmt tölum X þann 3. nóvember hafði færslan fengið 87,6 milljónir áhorfa, um 385 þúsund „læk“og um 72 þúsund endurbirtingar. Hún birtist sunnudagskvöldið 1. nóvember að bandarískum tíma, eða klukkan 01:47 aðfaranótt 2. nóvember að íslenskum tíma.
Fullyrðingar Carlsons um þrýsting frá Netanyahu
Carlson heldur því fram að þrýstingur frá Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, gæti leitt til kjarnorkuárásar Bandaríkjanna á Íran innan nokkurra daga. Hann skrifar:
„Undir þrýstingi frá Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, gæti Trump stjórnin verið nokkrum dögum frá því að gera kjarnorkuárás á Íran. Skotmarkið yrði Pickaxe fjall í miðju Írans, þar sem ísraelska leyniþjónustan heldur því fram að írönsk stjórnvöld hafi hafið auðgun kjarnorkuefnis á ný. Ekkert hefðbundið vopn í bandaríska vopnabúrinu getur komist í gegnum 300 fet af gegnheilu graníti til að eyðileggja jarðgöngin þar sem auðgunin er sögð fara fram.“
Þrjú hundruð fet eru um 90 metrar. Carlson heldur áfram:
„Eini hernaðarlegi valkosturinn er kjarnorkuárás. Netanyahu hefur þrýst mjög á um að hún verði gerð.“
Hann hefur síðan eftir aðila sem hann segir þekkja til: „Bibi hringir í Trump út af þessu á hverjum degi.“
Um stöðu Netanyahus skrifar Carlson:
„Netanyahu er kominn í þrönga stöðu og örvæntingarfullur. Eftir kosningaúrslit síðustu viku getur hann ekki myndað ríkisstjórn nema Trump grípi beint inn í ísraelsk stjórnmál og komi á samkomulagi við aðra flokka sem tryggi Netanyahu 61 sæti í Knesset. Annars missir hann forsætisráðherraembættið og þá bíða hans smán, rannsóknir og hugsanlega fangelsi. Netanyahu verður að halda nánu sambandi við Trump. Hann þarf á þessu stríði að halda.“
Carlson setur einnig fram spá um afleiðingar slíkrar árásar:
„Kjarnorkuárás Bandaríkjanna á Íran myndi skapa nýtt fordæmi. Rússar hafa þegar sagt að minnsta kosti tveimur öðrum ríkisstjórnum að bandarísk kjarnorkuárás á Íran myndi gefa þeim frjálsar hendur til að beita kjarnorkuvopnum gegn Úkraínu. Pakistan og Indland myndu freistast til að gera hið sama hvort gegn öðru, líkt og Norður Kórea gegn Seúl. Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óumflýjanleg.“
Samkvæmt Jerusalem Post sagði Carlson jafnframt að Netanyahu beitti nána bandamenn sína í stjórninni „hámarksþrýstingi“, þar á meðal Pete Hegseth varnarmálaráðherra og Marco Rubio utanríkisráðherra.
Blaðið segir Carlson hafa hvatt fólk til að „láta í sér heyra“ í lok færslunnar. Jerusalem Post lýsir Pickaxe fjalli, sem einnig nefnist Kuh-e Kolang Gaz La, sem rammgerðu jarðgangasvæði nálægt Natanz auðgunarstöðinni.
Carlson vísar til eins ónafngreinds heimildarmanns og samkvæmt Al Arabiya leggur hann ekki fram gögn sem hægt er að sannreyna.
Danon hafnar fullyrðingunum
Danny Danon, sendiherra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum, hafnaði fullyrðingum Carlsons í viðtali við Al Arabiya English 2. nóvember.
„Þetta eru fjarstæðukennd ummæli. Enginn er einu sinni að ræða þetta í Bandaríkjunum eða Ísrael,“ sagði Danon. Hann bætti við: „Netanyahu forsætisráðherra er ekki að þrýsta á Trump forseta.“
Danon sagði það ekki heiðarlegt að gefa í skyn að Bandaríkin myndu ráðast á Íran að undirlagi Ísraels. Hann sagði þetta ekki í fyrsta sinn sem Carlson dreifði lygum um Ísrael og að fjölmiðlamaðurinn vissi betur.
Svar Hvíta hússins
Embættismaður Hvíta hússins svaraði fyrirspurn varnarmálamiðilsins TWZ, The War Zone, um fullyrðingar Carlsons 2. nóvember.
„Trump forseti hefur úr mörgum kostum að velja varðandi Íran og hann mun gera það sem rétt er til að tryggja öryggi bandarísku þjóðarinnar,“ sagði embættismaðurinn.
Hann sagði Carlson hafa villst af leið fyrir löngu vegna þess sem hann kallaði lamandi tilfelli af Trump þráhyggju og fullyrti að hann hefði enga innsýn í hernaðaráætlanir eða hugsun æðsta yfirmanns heraflans.
Ummæli Trumps um kjarnorkuvopn og Pickaxe fjall
Í viðtali við Newsmax 15. október sagðist Trump ekki myndu beita kjarnorkuvopnum gegn Íran, samkvæmt Arab News.
„Nei, ég myndi ekki beita kjarnorkuvopnum. Við þurfum þess ekki,“ sagði Trump.
Um MOAB sprengjuna sagði hann: „Móðir allra sprengja er ein stór sprengja, en hún er ekki kjarnorkusprengja.“
Í sama viðtali sagði hann einnig: „Nú horfum við til Pickaxe fjalls. Við gætum þurft að fara þangað.“
TWZ greindi frá því að Trump hefði svarað „nei“ mánudaginn 2. nóvember þegar hann var spurður hvort hann íhugaði árás eftir kosningarnar.
Samkvæmt Telegraph sagði Trump við Fox News mánudagskvöldið 2. nóvember að hugsanlega þyrfti að ráðast á Pickaxe-fjall.
„Við gætum þurft að ráðast á Pickaxe, en það er ekkert stórmál. Við getum gert það á bókstaflega einni klukkustund,“ sagði Trump.