Þá barst lögreglunni á stöð 2, sem sér um Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, tilkynning um að brotist hefði verið inn í heimahús í hverfi 220 og munir teknir ófrjálsri hendi, er fram kemur í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Mikið mæddi á lögreglufólki í morgun en aðeins það var aðeins minna um að vera frá því klukkan fimm í morgun ef marka má lista skráðra mála, þótt hann sé ekki tæmandi.
Tilkynnt um eld í fyrirtæki
Það voru í það minnsta tveir sem gistu í fangageymslu í dag en vakthafandi lögreglu á stöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, barst tilkynning um aðila í mjög slæmu ástandi í heimahúsi í hverfi 111. Sá var vistaður í fangaklefa vegna ástands.
Á sama varðsvæði barst tilkynning um sofandi aðila í stigahúsi í hverfi 109 en sá var vakinn af lögreglu og „gekk sína leið“. Í hverfi 108 var ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur en hann keyrði um á 114 kílómetra hraða á götu þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.
Í miðbæ Reykjavíkur barst lögreglu tilkynning um eld í fyrirtæki en í ljós kom að mikill reykur sem var að sjá á staðnum stafaði af hárblásara sem hafði bilað.