Samstarf Þjóðkirkjunnar og Minningarsjóðs Ólafar Töru um sálgæslu fyrir baráttufólk verður hleypt af stokkunum í byrjun ágúst. Samfélagsmiðlar eiga stóran þátt í álagi á baráttufólk gegn kynbundnu ofbeldi.
Ólöf Tara Harðardóttir lést í upphafi síðasta árs eftir áralanga baráttu gegn ofbeldi. Telma Árnadóttir, systir hennar segir ekki hlaupið að því að fá stuðning þegar álagið sem fylgir réttindabaráttu fer að segja til sín.
„Við vorum að hugsa hver grípur utan um fólkið sem stendur í framlínunni? Þau eru að aðstoða aðra en fá enga aðstoð sjálf,“ segir Telma. Ekki allir hafi tök á að leita til sálfræðinga „Það geta verið langir biðlistar og kostar mikið,“ segir Telma.
Biskup Íslands kynnti samstarf Þjóðkirkjunnar og Minningarsjóðs Ólafar Töru á Druslugöngunni um helgina. Baráttufólki gegn kynbundu ofbeldi býðst sálgæsla og handleiðsla hjá presti sem hefur langa reynslu af að vinna með þolendum ofbeldis.
„Þjóðkirkjan er stærsta sálgæsla landsins og hún er opin fyrir öllum, alveg sama hvað þú trúir á, alveg sama hvaða kyn,“ segir Telma.
Telma segir umræðu á samfélagsmiðlum geta verið baráttufólki erfiða. „Internetið spilar mjög stóran leik inn í þetta, það er svo frjálst að það geta allir sagt eitthvað, hvort sem er undir nafni eða nafnleynd,“ bætir Telma við.
Minningarsjóðurinn leitaði til biskups sem tók vel í hugmyndina. Laufey Brá Jónsdóttir, prestur í Fossvogsprestakalli, sér um verkefnið af hálfu Þjóðkirkjunnar. Hún hefur bæði unnið sem ráðgjafi í Kvennaathvarfinu og Bjarkarhlíð auk þess sem hún sótti sér viðbótarnám í sálgæslu.
Hún tekur undir með Telmu um áreitið sem fylgir umræðu á samfélagsmiðlum. „Þegar við erum að tala um hluti sem hafa verið þaggaðir niður í kynslóðir, þá verða viðbrögðin mjög sterk, varnarviðbrögðin. Það er það sem þau fá framan í sig.“ segir Laufey.
Hægt er að hafa samband við Laufeyju í tölvupósti. „Í sálgæslunni erum við ekki að nálgast hlutina út frá trú eða trúarbrögðum og það skiptir líka miklu máli að allt sem við gerum, það kostar ekki,“ Segir Laufey. Hún bætir við að fullur trúnaður ríki um það sem um er rætt.
Hún bendir á að við það að hjálpa öðrum geti áföll ýfst upp. „Þess vegna skiptir mjög mikli máli að þau hafi athvarf, þau hafi stað þar sem þau geta komið og aðeins pústað.“