Maður sem er meðákærður í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur játar að hafa farið tvisvar að heimilum brotaþola málsins. Þetta kom fram við aðalmeðferð í máli Írisar Helgu sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldum.
Hann hafnar þó að hafa tekið að öðru leyti þátt í umsáturseinelti Írisar Helgu eða að hafa hvatt hana til verka.
„Þetta var bara djók til að byrja með,“ sagði maðurinn framhald aðalmeðferðarinnar í dag.
Maðurinn er meðákærður ásamt Írisi Helgu fyrir að aðstoða Írisi í umsáturseinelti sínu. Helst er honum gefið að sök, eins og áður var nefnt, að hafa farið að heimili eins mannanna og sambýliskonu hans og atað þar hurðarhún hússins með saur. Maðurinn staðfesti að það hefði átt sér stað.
Fyrsta degi aðalmeðferðar í málinu lauk í gær og var þá tekin skýrsla af Írisi Helgu. Hún neitaði þar að hafa stundað umsáturseinelti gegn brotaþolum.
Íris Helga kvaðst ekki hafa hvatt manninn til verknaðarins með berum orðum en lesin voru upp samskipti þeirra á milli þar sem maðurinn sendi meðal annars: „Skítaverkefni lokið.“
Íris lýsti því yfir að maðurinn væri eini vinur hennar sem ekki hefði snúið við henni baki í gegnum málaferli síðustu ára. Þau hefðu kynnst í gegnum vinnu en hefðu einnig þekkst sem börn.
Trúði því sem Íris Helga sagði
Maðurinn sagði að hann hefði trúað því á þeim tíma sem brotin áttu sér stað að Íris Helga og dóttir hennar hefðu orðið fyrir raunverulegum skaða af hendi brotaþola í málinu. Hann hafi ekki vitað af öðrum brotum sem Íris Helga er sökuð um, svo sem að stofna falska reikninga á samfélagsmiðlum til að dreifa níði um mennina og fjölskyldur þeirra.
Maðurinn lýsti að hann hefði meðal annars séð myndefni frá Írisi þar sem falskir reikningar væru að áreita hana og að sími hennar væri stundum að hringja stanslaust, sem hún sagði vera vegna áreitis af hendi brotaþola.
Ræddu að skjóta flugeldum að bíl brotaþola
Maðurinn lýsti því að þau hefðu gantast með að kaupa flugeldatertu og skjóta henni á bíl mannsins og sambýliskonu hans. Það hafi verið rætt þar sem fyrrverandi sambýlismaður Írisar hefði valdið skemmdum á hennar bíl.
Þá hafi maðurinn einnig stungið upp á því að hringt yrði í Votta Jehóva og þeir beðnir að mæta að heimili brotaþola. Einnig var gantast með að kaupa sápustykki handa brotaþola þar sem hann væri á leið í fangelsi.
„Mér fannst þetta allt bara frábærar hugmyndir á þessum tíma,“ sagði maðurinn sem spurði ákæranda hvort hann myndi ekki styðja vinkonu sína ef hún hefði sagst hafa orðið fyrir árásum og áreiti.
Þegar réttargæslumaður spurði manninn hvort hann hefði aðstoðað Írisi Helgu ef hann hefði vitað að hún hefði sagt ósatt um margt í málinu sagði hann að svo væri ekki.
„Ef ég hefði vitað að málinu væri öfugt farið, þá væri ekki fræðilegur möguleiki, þá hefði ég ekki farið að setja skít á hurðarhúninn hjá saklausu fólki,“ sagði maðurinn.