Alls hafa yfir 4.200 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. igríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, segir þátttöku fyrstu dagana meiri en við var búist.
Já, okkur sýnist að það sé það verði mikil kosningaþátttaka og fólk er að mæta mun fyrr á kjörstað núna og margir að greiða atkvæði utan kjörfundar.
Sigríður segir rétt að taka fram að landskjörstjórn hafi ákveðið að utankjörfundur skyldi opna fimm vikum fyrir kjördag. Það sé viku lengur en tíðkast í kosningum almennt.
Hún segir erfitt að segja hvað skýri þessa miklu kjörsókn nærri þremur vikum fyrir kosningar. Margir sem kjósi snemma séu búsettir erlendis.
Við sjáum að við erum að fá stúdenta sem eru í námi erlendis, þeir koma og kjósa áður en þeir fara út aftur og síðan erum við að sjá þó nokkuð af fólki sem er kannski með tvöfalda búsetu, býr hluta úr árinu í útlöndum, að þau eru líka að koma núna og verða kannski ekki heima á kjördegi en svo eru bara mikil sumarfrí þannig að það er spurning hvort það verði ekki líka bara áfram mikið að gera og jafnvel á kjördegi líka.