Tannlæknastofan Kjaftstopp í Reykjanesbæ hefur birt myndband á TikTok-reikningi sínum þar sem lýst er yfir stuðningi við bandarísku konuna Lindsay Clancy, sem nú er fyrir rétti í Massachusetts vegna dauða þriggja barna sinna. Verjendur Clancy viðurkenna að hún hafi orðið börnunum að bana en segja hana hafa verið haldna alvarlegri fæðingarsturlun og eigi því ekki bera refsiábyrgð.
Í myndbandinu, sem birt var á TikTok-reikningi Tannlækna Hafnargötu 91, sést kona klædd bleiku og yfir myndbandinu stendur:
„Movement started. Mothers in Iceland stand with Lindsey.“
Þýða mætti það sem: „Hreyfingin er farin af stað. Mæður á Íslandi standa með Lindsey.“
Með myndbandinu stendur jafnframt: „Mothers stand with Lindsey“, ásamt myllumerki sem vísar til Lindsay Clancy-málsins.
Nútíminn hefur myndbandið undir höndum og birtir það hér að neðan.
Myndbandið hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum síðan það var sett á TikTok fyrir þremur dögum. Þegar þetta er skrifað hafa tugir þúsunda séð það og 173 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna. Margar þeirra eru gagnrýnar á afstöðu Kjaftstopp og þá ákvörðun tannlæknastofunnar að taka opinbera afstöðu í málinu.
Kjaftstopp er tannlæknastofa við Hafnargötu 91 í Reykjanesbæ. Á heimasíðu stofunnar kemur fram að Birna Ýr Thorsdóttir sé rekstrarstjóri hennar og að samfélagsmiðlar séu sérstaklega meðal verkefna hennar. Þar segir jafnframt að hún haldi utan um samfélagsmiðla Kjaftstopps.
Banaði þremur ungum börnum sínum
Lindsay Clancy, 36 ára, er fyrrverandi hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild Massachusetts General Hospital. Hún er ákærð fyrir morð á þremur börnum sínum, Cora, fimm ára, Dawson, þriggja ára, og Callan, átta mánaða.
Atburðirnir áttu sér stað á heimili fjölskyldunnar í Duxbury í Massachusetts 24. janúar 2023.
Ekki er deilt um að Clancy hafi banað börnunum. Þau fundust í kjallara heimilisins eftir að hafa verið kyrkt með æfingateygjum. Eftir verknaðinn stökk Clancy út um glugga á annarri hæð hússins. Hún lifði fallið af en lamaðist fyrir neðan mitti.
Saksóknarar halda því fram að verknaðurinn hafi verið skipulagður. Þeir segja Clancy hafa fengið þáverandi eiginmann sinn, Patrick Clancy, til að yfirgefa heimilið undir því yfirskini að sækja lyf fyrir eitt barnanna og mat fyrir fjölskylduna. Hún hafi síðan banað börnunum meðan hann var í burtu.
Patrick Clancy kom heim skömmu síðar og fann eiginkonu sína mikið slasaða fyrir utan húsið. Í réttarhöldunum hefur verið spiluð neyðarlínusímtal hans þegar hann fór inn í húsið og fann börnin í kjallaranum.
Verjendur segja hana hafa verið í fæðingarsturlun
Vörn Clancy snýst ekki um hvort hún hafi banað börnunum heldur hvort hún hafi verið sakhæf þegar verknaðurinn var framinn.
Verjandi hennar, Kevin Reddington, heldur því fram að Clancy hafi verið haldin fæðingarsturlun, eða postpartum psychosis, auk geðhvarfasýki, og hafi verið mjög illa á sig komin eftir fæðingu yngsta barnsins.
Fæðingarsturlun er afar sjaldgæft en alvarlegt geðrænt ástand þar sem einstaklingur getur misst tengsl við raunveruleikann, meðal annars upplifað ranghugmyndir eða ofskynjanir. Talið er að um ein til tvær af hverjum þúsund konum eftir fæðingu fái slíkt ástand.
Gögn sem lögð hafa verið fram í réttarhöldunum sýna að Clancy leitaði ítrekað eftir geðheilbrigðisaðstoð mánuðina fyrir dauða barnanna. Hún hafði samband við marga meðferðaraðila, fékk ýmis geðlyf, hafði samband við sjálfsvígsforvarnarlínu, fór á bráðamóttöku og lagðist að lokum sjálf inn á geðdeild. Börnin létust 19 dögum eftir að hún var útskrifuð þaðan.
Patrick Clancy hefur einnig borið fyrir dómi að andlegri heilsu eiginkonu hans hafi hrakað verulega síðustu mánuðina og að hún hafi meðal annars sagt honum frá ágengum hugsunum um að skaða börnin og taka eigið líf.
Sagðist hafa heyrt rödd skipa sér að drepa börnin
Eitt lykilatriði varnarinnar er frásögn Clancy um að hún hafi heyrt karlmannsrödd skömmu áður en börnin létust.
Réttarsálfræðingurinn Paul Zeizel, sem tók Clancy til meðferðar eftir atburðina, sagði fyrir dómi að ekkert benti til þess að hún hefði verið að þykjast veik. Hann sagði hana hafa lýst því að rödd hefði skipað henni að drepa börnin og síðan sjálfa sig.
Zeizel sagði það mat sitt að geðsjúkdómur Clancy hefði gert það að verkum að hún skildi ekki ranglæti gjörða sinna og gæti ekki stjórnað hegðun sinni í samræmi við lög.
Réttargeðlæknirinn Phillip Resnick, sem meðal annars kom að hinu þekkta Andrea Yates-máli, bar einnig vitni fyrir vörnina. Hann sagði Clancy hafa verið í geðrofi daginn sem börnin létust og að hún hefði upplifað sig eins og utanaðkomandi afl stjórnaði líkama hennar.
Saksóknarar hafna þeirri túlkun.
Réttargeðlæknirinn Avram Mack, sem kallaður var til af ákæruvaldinu, sagði að Clancy hefði að hans mati þjáðst af alvarlegu þunglyndi og kvíða, en að ekki væru nægar vísbendingar um geðrof eða geðhvarfasýki. Hann taldi hana hafa getað greint rétt frá röngu og borið refsiábyrgð á gjörðum sínum.
Hundruð kvenna klæddust bleiku til stuðnings Clancy
Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum og á samfélagsmiðlum hefur myndast umfangsmikil stuðningshreyfing við Clancy.
Á fimmtudag komu um 300 stuðningsmenn saman fyrir utan Plymouth Superior Court í Massachusetts. Flestir voru konur og margar þeirra klæddust bleiku.
Á fatnaði og skiltum mátti meðal annars sjá skilaboð á borð við „She Needed Help“ og „Peace For Lindsay“. Stuðningsmennirnir segja málið ekki aðeins snúast um Clancy heldur einnig um skort á skilningi og úrræðum fyrir konur sem glíma við alvarleg geðræn veikindi eftir barnsburð.
Sumar kvennanna komu langt að og stuðningsmenn héldu meðal annars uppi fánum ýmissa ríkja til að sýna að stuðningurinn við Clancy næði út fyrir Bandaríkin.
Myndband Kjaftstopps virðist nú færa þá stuðningshreyfingu til Íslands.
Þar er ekki aðeins lýst yfir stuðningi við Clancy heldur fullyrt beinlínis að „mæður á Íslandi standi með“ henni og að „hreyfingin sé farin af stað.“
Réttarhöldunum að ljúka
Vörn Clancy lauk málflutningi sínum á föstudag en ákæruvaldið hóf í kjölfarið að kalla til vitni til andsvara. Búist er við lokaræðum í málinu á næstu dögum.
Verði Clancy sakfelld fyrir morð af fyrstu gráðu á hún yfir höfði sér lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.
Verði hún hins vegar talin hafa verið ósakhæf vegna geðsjúkdóms verður hún ekki látin laus, heldur vistuð á geðheilbrigðisstofnun í Massachusetts.
Málið snýst því að stórum hluta um þá einu spurningu sem kviðdómurinn þarf að svara: Vissi Lindsay Clancy hvað hún var að gera og gat hún stjórnað gjörðum sínum – eða var hún í svo alvarlegu geðrofi að hún bar ekki refsiábyrgð?