Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem leiða til uppsagna 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf.
Borgarráð samþykkti á aukafundi í dag tillögu borgarstjóra um breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Breytingarnar snerta tæplega 400 starfsmenn á sviðunum tveimur.
Ný skipurit taka gildi 1. september og innleiðingu breytinganna á að vera lokið fyrir 1. janúar 2027. Hagræðing á ársgrundvelli er talin nema um 900 milljónum króna.
Á meðal þeirra 54 starfsmanna sem fá ekki áframhaldandi starf eru 22 stöðugildi sem verða lögð niður þegar samningur Reykjavíkurborgar við ríkið vegna samræmdrar móttöku flóttamanna rennur út um áramót.
Leggja niður miðstöðvarnar
Miðstöðvar Reykjavíkurborgar – Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurmiðstöð verða lagðar niður sem sérstakar skipulagseiningar sem og frístundamiðstöðvarnar Brúin, Kringlumýri, Miðberg og Tjörnin auk Keðjunnar og Virknihúss.
Verkefni þeirra verða færð undir nýtt skipulag skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Þá verður Alþjóðateymi lagt niður.
Þjónusta á miðstöðvunum verður veitt með óbreyttu fyrirkomulagi eftir því sem innleiðingu breytinganna vindur fram.
„Með hinu nýja skipulagi verður áfram lögð megináhersla á nærþjónustu við íbúa í hverfum, skólum og frístundastarfi,“ segir í tilkynningu frá borginni.
Markmiðið er sagt vera einföldun skipulags, fækkun stjórnunar- og rekstrareininga, skýrari verkaskipting og styttri boðleiðir.
Skiptar skoðanir hjá minnihlutanum
Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins var jákvæður og sagði í bókun sinni með tillögunni að breytingarnar væru líklegar til að bæta þjónustu við borgarbúa.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sögðu í sinni bókun að ekki lægi fyrir að það væri nauðsynlegt að fórna hverfamiðaðri nærþjónustu fyrir miðlægt skipulag.
„Það eru varhugaverð vinnubrögð að samþykkja meiriháttar stefnubreytingu án þess að rekstrarleg útfærsla, þjónustumælikvarðar eða mat á afleiðingum liggi fyrir,“ skrifuðu þau enn fremur.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins var afdráttarlausari og sagði tillögurnar illa ígrundaðar og breytingarnar hroðvirknislegar. „Er meirihlutinn að valda miklum skaða sem bitnar á íbúum og þjónustu við viðkvæma hópa. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að vernda grunnþjónustuna munu þessar breytingar gera hið gagnstæða.“
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands sagði einnig að tillögurnar væru illa ígrundaðar. „Miklar áhyggjur vakna yfir stöðu málaflokks fólks af erlendum uppruna eftir niðurlagningu mannréttindaskrifstofu og nú alþjóðateymis.“