Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn. Fulltrúar Microsoft komu til Húsavíkur fyrir nokkrum vikum.
Alþjóðlega fjárfestingarfélagið Akur Capital, sem er með aðsetur í London, mun reisa gagnaverið og reka það. Þóra Helgadóttir Frost, viðskiptaþróunarstjóri hjá Akur Capital, segist ekki mega svara því af öryggisástæðum við hvaða fyrirtæki Akur er að ræða. Fréttastofa spurði hana að því hvort Microsoft væri fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins. „Það er ekkert sem við getum sagt; það er bara öryggismál,“ segir Þóra.
Þóra hefur sagt í fjölmiðlum að þetta sé fyrsta skiptið sem gagnaver gerir samning við aðeins eitt fyrirtæki um að kaupa þjónustu í gagnaveri á Íslandi.
Fjallað er um gagnaverið fyrirhugaða í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Í þættinum er rætt við Þóru og sveitarstjórann í Norðurþingi, Bergþór Bjarnason. Þáttinn má hlusta á hér:
Sveitarstjórinn vill ekki svara
Microsoft er eitt stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði, meðal annars í gagnahýsingu og þróun gervigreindar. Microsoft á og rekur skýjaþjónustuna Azure þar sem hvers kyns stafræn gögn eru hýst fyrir viðskiptavini. Þekkt gervigreindarverkfæri frá Microsoft er meðal annars Copilot sem margir nota á hverjum degi. Gervigreindarfyrirtæki eins og Microsoft þurfa að tryggja sér þjónustu gagnavera vegna þeirrar miklu þarfar fyrir gagnahýsingu sem rekstur fyrirtækisins byggir á, meðal annars þróun gervigreindarverkfæra.
Microsoft á meira en 500 gagnaver víða um heim vegna þessa, meðal annars í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Microsoft gefur ekki upp nákvæm heimilisföng á gagnaverunum sínum heldur einungis löndin og borgirnar þar sem þau eru staðsett. Öryggissjónarmið ráða þessu.
Þegar sveitarstjórinn í Norðurþingi, Bergþór Bjarnason, er spurður að því hvort Microsoft sé fyrirtækið sem um ræðir segist hann ekki getað svarað því. „Þeir hafa komið hingað á staðinn og skoðað aðstæður. [...] Enda er það ekki í verkahring okkar að svara fyrir það. Þeir verða bara að svara því,“ segir sveitarstjórinn.
Fjárfesting fyrir milljarð dala
Fyrirtækið sem stendur á bak við fyrirhugaða byggingu þessa gagnavers, Akur Capital, er staðsett í London. Þetta fjárfestingarfélag á dótturfélagið Eyrie DC sem mun halda utan um verkefnið á Íslandi ef af því verður.
Gagnaverið á að rísa hinum megin við þjóðveginn gegnt kísilmálmsverksmiðju PCC á Bakka sem verið hefur lokuð í meira en ár og 150 manns misstu vinnuna.
Heildarfjárfestingin í verkefninu nemur um einum milljarði Bandaríkjadollara eða um 120 milljörðum króna. Í tölvupósti frá almannatengli fyrirtækisins kemur fram að gagnaverið muni skapa 50 störf fyrir heimamenn í Norðurþingi.
Íslandstengingar Akurs DC
Heildarfjárfestingin í verkefninu nemur um einum milljarði Bandaríkjadollara eða um 120 milljörðum króna. Í tölvupósti frá almannatengli fyrirtækisins kemur fram að gagnaverið muni skapa 50 störf fyrir heimamenn í Norðurþingi.
Af hverju heitir fjárfestingarfélag í London, Akur DC? Þóra Helgadóttir segir að ástæðan sé sú að eiginmaður hennar, Tom Frost, sé forstjóri fyrirtækisins og að þau hafi átt í miklum samskiptum við Íslending frá Akureyri um það leyti sem fyrirtækið var stofnað. „Það er svolítið skemmtileg saga [...] Þegar kom að stofnun fyrirtækisins á sínum tíma vorum við talsvert í kringum Íslending frá Akureyri sem talaði svo vel um Akureyri. Þegar kom að því að velja nafn þá kom Akureyri upp sem hugmynd. [...] Við erum búin að þurfa að skýra þetta nafn út fyrir erlendum aðilum. Fyrirtækið hefur ekki neitt sérstaklega fyrir norðan en það eru kannski örlögin að það gerist núna, svona mörgum árum síðar.“