Þeir Keir Starmer og Donald Tusk, forsætisráðherrar Bretlands og Póllands, undirrita í dag nýjan gagnkvæman varnarsamning að því er segir í tilkynningu frá breskum stjórnvöldum. Sá síðarnefndi er væntanlegur til Lundúna í dag.
Samkvæmt ákvæðum samningsins munu ríkin berjast sameiginlega gegn skipulagðri glæpastarfsemi, styrkja varnir, verja landamæri landanna og auka samvinnu við Evrópusambandið. S
tarmer segir ríkin nú þegar trausta samherja en þau bönd þurfi að herða enn í ljósi þeirra áskorana sem blasi við Evrópu. „Þessi samningur er stærsta skrefið sem okkar kynslóð stígur fram á við varðandi öryggis- og varnarsamband við Pólland,“ segir Starmer.
Með samkomulaginu geti ríkin tekist á við öryggisvá nútímans, sem erfiðara sé að greina en hættur fortíðar en séu ekki síður geigvænlegar. Sameiginlegt markmið ríkjanna sé að tryggja öryggi borgaranna um mörg ókomin ár.