Spjallið með Frosta Logasyni
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir hugmyndina um „Já til að sjá“ ekki standast þegar eðli aðildarferlis Evrópusambandsins er skoðað.
Í viðtalinu segir hann frá nýlegum samtölum sínum í París við fyrrverandi háttsettan embættismann Evrópusambandsins og sérfræðing í málefnum sambandsins. Þegar Ólafur Ragnar útskýrði fyrir þeim hugmyndina um að Íslendingar gætu farið í viðræður án þess að hafa tekið afstöðu með aðild hafi viðbrögð þeirra verið einföld: „Þeir hlógu.“
Ólafur Ragnar varar jafnframt við því að já-niðurstaða 29. ágúst verði túlkuð erlendis sem endurvakin umsókn Íslands um aðild að ESB. Það geti haft áhrif á viðskiptahagsmuni Íslands strax, jafnvel þótt aðild verði síðar hafnað.
Þá vekur hann sérstaka athygli á því að engin formleg trygging sé fyrir því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram að loknum viðræðum.
„Þeir sem ætla að segja já á grundvelli þess að það komi samningur og þá geti þeir hugsað málið […] eru bara að veðja á óvissu,“ segir Ólafur Ragnar.
Klippan er úr ítarlegu viðtali Frosta Logasonar við Ólaf Ragnar Grímsson í Spjallinu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/