Verkefni lögreglu voru óvenjufá miðað við fyrsta dag verslunarmannahelgar. Nóttin var að mestu leyti stórtíðindalaus að undanskildu útkalli Landhelgisgæslunnar til Vestmannaeyja þar sem þyrla sótti mann sem slasaðist á fæti.
Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að skemmtanahald virðist hafa gengið vel fyrir sig.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af þremur vegna ölvunar en enginn gisti fangageymslu í nótt. Lögregla hafði tvisvar afskipti af börnum sökum áfengisneyslu.
Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Grunurinn reyndist á rökum reistur. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi, segir umferð hafa gengið óvenjuvel og dreifst vel. Engin alvarleg slys hafi orðið og almennt lítið um útköll.