Lóðaverð á höfuðborgarsvæðinu byrjaði að skrúfast upp þegar lóðir í Úlfarsárdal voru settar í útboð fyrir rúmum aldarfjórðungi. Íbúðamarkaðurinn hér á landi hefur verið í sömu 5-7 ára sveiflunum í heila öld og okkur tekst einhvern veginn aldrei að ná jafnvægi. Mjög mikilvægt er að einfalda regluverk og stytta þann tíma sem kerfið tekur sér til að úthluta lóðum og veita ýmis leyfi. Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Sigurður Brynjar Pálsson: Með ólíkindum að við skulum ekki læra af sögunni – það eru til leiðir til úrbóta