Sexan millilenti einnig í Reykjavík þann 7. júlí síðastliðinn á leið sinni vestur um haf og vakti koma hennar mikla athygli meðal íslenskra flugáhugamanna. DC 6 hafði þá ekki sést á Reykjavíkurflugvelli í aldarþriðjung.
Flugvélin er núna á leiðinni frá Gander á Nýfundnalandi en þaðan fór hún í loftið klukkan 11:25 í morgun, samkvæmt Flightradar 24. Gera má ráð fyrir að hún verði fimm til sex klukkustundir á leiðinni og gæti lending í Reykjavík verið um klukkan 17. Áhöfnin mun dvelja í borginni yfir nótt og má áætla að brottför frá Reykjavík verði milli klukkan 9 og 10 í fyrramálið.
Þetta var fyrsta ferð hennar yfir Norður-Atlantshaf í 68 ár en hún hafði ekki komið til Bandaríkjanna eftir að smíði hennar lauk í Douglas-flugvélaverksmiðjunni í Santa Monica í Kaliforníu árið 1958. Hún var upphaflega keypt sem forsetaflugvél fyrir Josip Broz Tito, leiðtoga Júgóslavíu, sem seldi hana árið 1975 til Kenneths Kaunda, leiðtoga Zambíu.
Í vesturförinni flaug flugvélin meðal annars yfir New York-borg og skýjakljúfa Manhattan en megintilgangur ferðarinnar var að taka þátt í Oshkosh-flughátíðinni í Wisconsin. Frá Oshkosh var henni flogið í sýningarflug til borga eins og Minneapolis og Chicago. Önnur fræg flugvél Flying Bulls, P-38 Lightning, fylgdi sexunni vestur um haf en sú kom við í Reykjavík á fimmtudag.
DC 6B-flugvélar voru burðarásinn í millilandaflugi íslensku flugfélaganna, bæði Loftleiða og Flugfélags Íslands, á árunum frá því um og fyrir 1960 og þar til þotuöldin gekk í garð. Þær lögðu grunninn að mestu velgengnisárum Loftleiða með Norður-Atlantshafsflugi félagsins.
Mjög fáar eru eftir flughæfar í heiminum, aðeins um einn tugur, og verður sífellt erfiðara að halda þeim gangandi. Núna síðdegis gæti því verið síðasta tækifæri til að sjá slíka vél lenda á Íslandi.
Hér má sjá komu hennar til Reykjavíkur þann 7. júlí: