Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandaríski herinn sé búinn að fjarlægja eða gera óvirk öll tundurdufl í Hormússundi. Hann greindi frá þessu í færslu á Truth Social í gær.
Hann sagði að Íranar hefðu verið látnir vita að hverju því skipi eða báti sem reyni að koma fyrir nýjum tundurduflum yrði grandað. Stjórnvöld í Íran hafa ekki brugðist enn við þessari tilkynningu Bandaríkjaforseta.
Yfirvöld í Íran og Óman eru í viðræðum um að opna siglingaleið tímabundið og hreinsun tundurdufla í Hormússundi. Stjórnvöld í Íran hafa þó varað við að siglingarleiðin verði ekki opnuð fyrr en Bandaríkin bindi enda á stríðið.
Íran og Óman eiga bæði landamæri að sundinu og reyna að vinna eftir þeirri áætlun sem Íranar og Bandaríkin sömdu um í viljayfirlýsingu sín á milli fyrr á árinu.
Aðstoðarutanríkisráðherra Íran, Kazem Gharibabadi, sagði við írönsku fréttastofuna IRNA að Íranar hefðu lokað Hormússundi vegna þess að Bandaríkin stóðu ekki við samkomulagið. Það gerðu þeir áður en til frekari viðskiptaþvingana Bandaríkjanna kom í gær.