Íranar saka Úkraínumenn um að hafa ráðist á íranskt kaupskip í Kaspíahafi á laugardag. Einn var drepinn í árásinni og annar særðist.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði á samfélagsmiðlum í gær að Úkraínuher hefði gert árásir með langdrægum flugskeytum á skip í Kaspíahafi sem flyttu hergögn sem bendluð væru við Íran. Þá hefðu árásirnar einnig beinst gegn herskipum.
Segjast aldrei hafa skipt sér af stríðinu í Úkraínu
Utanríkisráðuneyti Írans sagði árásirnar á laugardag hafa valdið sprengingu um borð í kaupskipi með þeim afleiðingum að einn lést og annar særðist, líkt og áður segir.
„Íslamska lýðveldið Íran hefur aldrei skipt sér af átökunum milli Rússlands og Úkraínu,“ staðhæfði ráðuneytið í yfirlýsingu sinni.
Í tilkynningu frá leyniþjónustu Úkraínu á Telegram segir að drónaárásir hafi verið gerðar á „flutningaskip, sem sæta alþjóðlegum refsiaðgerðum, sem voru notuð í hernaðarflutninga milli Írans og Rússlands“.
Vill að ESB og öryggisráð SÞ bregðist við
Íranskir ríkismiðlar greina frá því að utanríkisráðuneytið þar í landi hafi boðað sendifulltrúa Úkraínu á sinn fund til þess að mótmæla formlega þessum „óvinveittu og glæpsamlegu aðgerðum“.
Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins ræddust við í gær, að því er íranskir ríkismiðlar greina frá. Þar fór Araghchi fram á sterk viðbrögð við árásinni, bæði frá Evrópusambandinu og öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.