Rúður voru brotnar í nærri þrjátíu kyrrstæðum bílum á Seltjarnarnesi í nótt. Bílarnir stóðu í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þau sem geta veitt upplýsingar um málið að hafa samband í síma 444 1000.
Lögreglunni bárust tilkynningar um skemmdarverkin í dag. Í tilkynningu hennar segir að þar hafi verið á ferðinni „skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem braut rúður í bifreiðunum“. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum seint í gærkvöld og í nótt.
Þau sem búa á svæðinu eða áttu þar leið um á þessum tíma eru beðin um að athuga hvort þau hafi myndefni, bæði úr hefðbundnum eftirlitsmyndavélum og upptökum úr bílum.
Tjónið líklega nokkrar milljónir
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði við Vísi að lögreglu hefði borist tilkynning snemma í morgun. Um þrjátíu bílar urðu fyrir tjóni og í þeim var ýmist búið að brjóta eina eða tvær rúður. Hann sagði tjónið líklega hlaupa á einhverjum milljónum króna.
Lögregla veit ekki hvort einn eða fleiri voru að verki, að sögn Ásmundar. Hann sagði álíka mál hafa komið upp áður og nefndi eignaspjöll í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem bílar voru rispaðir.
Magnús Benediktsson, forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, vaknaði í morgun við skilaboð frá nágranna um að rúður hefðu verið brotnar í bílum við heimili þeirra hjóna. „Þetta eru hátt undir þrjátíu bílar sem urðu fyrir barðinu,“ sagði hann við Vísi.
Samkvæmt RÚV gekk óþekktur einstaklingur eða hópur fólks um Kirkjubraut og Nesveg og skemmdi bílana.