„Við fáum boðið klukkan 22:52, þá er allt tiltækt lið kallað út og fyrsti bíll er kominn á vettvang klukkan 23:04,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu.
Slökkvistarf hafi gengið vel og að búið hafi verið að slökkva eldinn um klukkan 15 mínútur í tólf. Sá sem var fluttur á slysadeild hafði komið sér sjálfur út úr íbúðinni áður en viðbragðsaðila bar að garði. Hundinum hans var svo bjargað af svölum en íbúðin er á þriðju hæð.
Að svo stöddu liggur líðan þess sem var fluttur á slysadeild ekki fyrir en þegar rætt var við Aldísi Rún Lárusdóttur varaslökkviliðsstjóra í gærkvöldi sagði hún ekki hafa verið útlit fyrir að viðkomandi væri í lífshættu.
Þá segir Sigurjón íbúðina verulega mikið skemmda og að eldsupptök séu enn ókunn en rannsókn standi yfir. Það hafi að öllum líkindum borist reykur um sameign hússins en þá hafi einnig lekið vatn í íbúðirnar á 2. og 1. hæð á meðan slökkvistarfi stóð.
Starfsfólk tryggingarfélaga hafi verið fengið á svæðið til að meta skemmdir.
„Annars var rosalega mikið að gera í nótt, dælubílarnir fóru í nokkur útköll og það var mjög mikið að gera í sjúkraflutningum,“ segir Sigurjón og bætir við að næturvaktin hafi sinnt ríflega sjötíu útköllum.