Klukkan 9:15 í morgun hófst aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem varðar hópárás inn á heimili í Holtagerði í Kópavogi laugardagsnóttina 18. september árið 2021.
Ótrúlegur dráttur hefur orðið á rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómstólum og hefur DV ekki upplýsingar um orsakir þess.
Málið vakti mikla athygli á sínum tíma. Nokkur hópur ungmenna var samankominn í samkvæmi í húsi í Holtagerði í Kópavogi. Faðir piltsins sem hélt samkvæmið var rétt ókominn heim frá útlöndum. Einum gesta var vísað burtu. Skömmu síðar kom hann til baka ásamt hópi manna sem komu á nokkrum bílum að húsinu og brutu sér leið inn í það með hömrum sem þeir síðan létu dynja á einhverjum gestum í samkvæminu.
Samkvæmt ákæru í málinu sem birt var haustið 2025 voru árásarmennirnir vopnaðir hnífum, bareflum og hömrum. DV ræddi daginn eftir árásina við móður eins brotaþolans en árásarmenn höfðu látið hamarshögg dynja á honum. Slapp hann þó þolanlega frá árásinni, mun betur en á horfðist. „Þetta er ekkert annað en morðtilraun,“ sagði móðirin.
Sjá einnig: Sárás á ungmenni á Kársnesi í nótt – Börðu fólk ítrekað í höfuð með hömrum
Samkvæmt kennitölum hinna ákærðu voru þeir á aldrinum 16 til 19 ára er brotin voru framin, þar af tveir 19 ára og var Gabriel Douane annar þeirra. DV hefur ekki upplýsingar um hvernig hinum sakborningunum hefur reitt af síðustu ár en Gabríel hefur setið af sér marga fangelsisdóma og verið margákærður, m.a. fyrir ofbeldisbrot innan fangelsa. Hann hefur reynt að koma lífi sínu á rétta braut og náð góðum tímabilum þegar honum hefur tekist að halda sig frá fíkniefnaneyslu. Gabríel var áður mjög efnilegur körfuknattleiksmaður og í fangelsi hefur hann lagt stund á tónlist.
Sjá einnig: Gabríel Douane og bróðir hans semja tónlist saman á Hólmsheiði – „Ég á skilið að vera í fangelsi fyrir það sem ég hef gert“
Sem fyrr segir eru meintir og ákærðir árásarmenn í málinu sex talsins. Þeir eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll. Brutu þeir gler í útidyrahurð og skemmdu innihurð.
Brotaþolar í málinu eru fjórir en þeir hlutu allir áverka í árásinni, þar á meðal hlaut einn skurðsár á höfði sem þurfti að sauma með sjö sporum. Hann er sá eini sem gerir skaðabótakröfu í málinu og krefst hann bóta að andvirði tæplega 2,2 milljóna króna.
Aðalmeðferð í málinu verður í dag og á morgun. DV mun sitja þinghaldið í dag og greina frá helstu vitnisburðum.