Nú hefur Hildur Björnsdóttir, ásamt Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, og Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, myndað nýjan meirihluta í Reykjavík og kosið að fara þá leið að mynda meirihluta hægri- og miðjuafla í stað þess að mynda hreina hægri stjórn með Miðflokknum, sem er yst til hægri á hinu pólitíska litrófi.
Orðið á götunni er að þessi ákvörðun Hildar sé skynsamleg á margan hátt. Með þessu móti forðast Sjálfstæðisflokkurinn að sogast enn lengra til hægri en þegar er orðið eins og líklegt er að hefði gerst í samstarfi með Miðflokknum.
Þá er það klókt af henni að fara í samstarf með Viðreisn, sem jafnframt er í ríkisstjórn og ræður fjármálaráðuneytinu. Reykjavíkurborg er gríðarlega háð samstarfi við ríkið og þátttöku þess í ýmsum verkefnum, ekki síst samgönguverkefnum, og ekki er verra að meirihlutinn í Reykjavík sé í mjög góðu talsambandi við fjármálaráðherra en enginn vafi leikur á því að oddviti Viðreisnar og fjármálaráðherra eru í góðum samskiptum.
Kjósendur í Reykjavík kölluðu eftir breytingum í stjórn borgarinnar í kosningunum 16. maí og nú er ljóst að þeim verður að ósk sinni. Margt má endurskoða og víða þarf að taka til hendinni og mikilvægt er að nálgast slíkt með opnum huga og út frá frjálslyndi og fjárhagslegu aðhaldi. Þess vegna er mjög heppilegt að nýi meirihlutinn sé samansettur eins og hann er.
Orðið á götunni er að mjög hafi verið klókt hjá Hildi að tilkynna að hún leggi til að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, verði stjórnarformaður Orkuveitunnar. Ari er með mikla og víðtæka reynslu af rekstri og enginn spurning að hann er sá borgarfulltrúi sem hæfastur er til að fara í Orkuveituna og vinna henni gagn. Orkuveitan er risafyrirtæki á íslenskan mælikvarða og miklu máli skiptir fyrir borgarbúa og samfélagið allt að vel takist til.
Þá er það einnig pólitískt klókt hjá Hildi að fela Ara trúnaðarstörf þótt hann og flokkur hans sé ekki í meirihlutasamstarfinu. Miðflokkurinn þykir kreddufullur, populískur hægri öfgaflokkur en Ari er ekki dæmigerður Miðflokksmaður. Hann er mun yfirvegaðri og öfgalausari en margir flokksfélagar hans. Orðið á götunni er að sumir í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna standi mun nær dæmigerðum Miðflokksmönnum en Ari. Hætt er við að einhverjir þeirra hlaupi út undan sér í einstökum málum. Með góðu samstarfi við Ara gæti Hildur átt Hauk í horni ef einhverjir hennar eigin flokksmanna reyna í verki að sýna sjálfstæði sitt í atkvæðagreiðslum.
Orðið á götunni er að myndun þessa nýja meirihluta og fyrstu skrefin bendi til þess að meirihlutinn geti orðið til góðs fyrir borgina og samfélagið. Góðar óskir fylgja honum úr hlaði.