„Bílstjórar verum vakandi!,“ skrifa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Samgöngustofa í Facebook-færslu. Hrekkjavakan hefur sótt á sig veðrið á undanförnum árum og fara æ fleiri börn að bjóða „grikk eða gott“ með vinum og fjölskyldu.
Mörg börn verði á gangi í hverfum höfuðborgarsvæðisins vegna hrekkjavökunnar í dökkum búningum sem sjáist illa í myrkri.
Sjá einnig: Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra
„Akið varlega og sýnið tillitsemi,“ skrifar lögreglan.
Þá er varað við við hálku á Flóttamannaleið og Krýsuvíkurvegi, og hálkublettum á Breiðholtsbraut og Suðurlands- og Vesturlandsvegi á vef Vegagerðarinnar.