Sextán ára bresk stúlka sem var nauðgað af tveimur unglingspiltum segir ákvörðun dómara um að sleppa þeim við fangelsisvist hafa verið eins og að fá „grjót í andlitið.“
Drengirnir, sem eru nú 15 ára, voru dæmdir til annars vegar þriggja ára og hins vegar 18 mánaða endurhæfingar, sem getur falið í sér ýmis konar samfélagsþjónustu, kröfu um áfengis- og fíkniefnameðferð eða skilyrði um að dvelja á ákveðnu heimili eða vera undir eftirliti í ákveðinn tíma.
Við dómsuppkvaðninguna sagði dómarinn að hann vildi ekki „glæpavæða“ svo unga drengi, en hann hrósaði þeim jafnframt fyrir framkomuna í réttarsalnum. Ríkissaksóknari hefur gefið út að hann muni skoða alla dóma yfir ungmennum sem dómarinn, Nicholas Rowland, hefur kveðið upp.
Tóku nauðganirnar upp á síma
Stúlkan og fjölskylda hennar voru í viðtali á BBC undir nafnleynd, en þau vilja að dómunum verði breytt þannig að drengirnir þurfi að sitja inni. Hún segir niðurstöðu dómsins gefa það til kynna að það sem þeir gerðu sé lagi í af því þeir eru enn börn. Dómurinn jafngildi því að slá á fingurna á þeim.
Stúlkan var 15 ára þegar henni var nauðgað af drengjunum í undirgöngum við ána Avon í Fordingbridge, Hampshire. Hún hafði verið í samskiptum við annan drenginn á samfélagsmiðlinum Snapchat og fór að hitta hann í fyrsta sinn í nóvember 2024.
Sakborningarnir tveir, sem nú eru 15 ára, voru einnig sakfelldir fyrir aðra nauðgun sem átti sér stað í janúar 2025. Annar piltur, nú 14 ára, var einnig sakfelldur fyrir aðild sína að seinni árásinni. Drengirnir tóku nauðganirnar upp á síma sína og deildu síðar hluta af myndefninu á netinu.
Fannst hún vera að missa vitið
Við dómsuppkvaðningu í Southampton Crown Court lagði dómarinn áherslu á „alvarleika“ glæpanna og sagði að upptökur af árásunum gerðu þá enn „alvarlegri“. Eftir að hafa tjáð sig um ungan aldur drengjanna hrósaði hann þeim fyrir hegðun sína við réttarhöldin.
„Af hverju sat ég og lagði á mig sársaukann við að fara fyrir dóm, ganga í gegnum réttarhöld, endurupplifa allt vegna sönnunargagna og horfa á allt gerast aftur?“ segir stúlkan í viðtalinu.
Það hafi tekið hana sex mánuði að öðlast kjark til að segja frá árásinni.
„Ástæðan fyrir því að ég sagði frá var sú að ég var að missa vitið. Ég var í niðursveiflu. Ég þurfti hjálp, en ég vissi ekki hvernig ég ætti að fá hana, svo ég sagði frá.“
Frá árásinni hafi hún verið döpur, reið, stressuð og þreytt. Hugsað um skólann, að þurfa vinnu og að reyna að koma lífi sínu á réttan kjöl á meðan henni fannst það vera að hrynja.
Forsætisráðherra tjáir sig
Keir Starmer, forsætisráðherra landsins, hefur brugðist við viðtalinu og segir það „átakanlegan og hugrakkan vitnisburð.“ Stúlkurnar sem urðu fyrir árásunum hafi báðar sýnt ótrúlegt hugrekki og styrk við hræðilegar aðstæður,
„Þetta er skelfilegt mál og það er rétt að saksóknarar endurskoði dómana með hraði,“ segir Starmer.
Ríkissaksóknari hefur 28 daga til að ákveða hvort dómum skuli vísað til áfrýjunardómstóls.