Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir mikilvægt að sýna bæði já-sinnum og nei-sinnum virðingu í umræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Þetta kemur fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Hann segist gleðjast yfir því að sjá almenna borgara stíga fram og lýsa yfir afstöðu sinni, óháð því hvort þeir ætla að segja já eða nei í atkvæðagreiðslunni. Mikilvægt sé að fólk sýni hvort öðru virðingu í umræðunni, en nokkuð skorti á það:
„Næst þegar okkur klæjar í fingurna að skrifa eitthvað niðrandi um manneskju sem er okkur ósammála“