Myndband Áfram Ísland um málskotsréttinn horfið
Áfram Ísland sagði ranglega að málskotsréttur forseta mundi hverfa við inngöngu í Evrópusambandið og að þjóðaratkvæðagreiðslur heyrðu þá mögulega sögunni til. Myndband með þessum fullyrðingum er horfið af samfélagsmiðlum hreyfingarinnar.
Áfram Ísland, hreyfing sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins, birti nýverið myndband á samfélagsmiðlum þar sem því er haldið fram að málskotsréttur forseta Íslands hverfi við ESB-aðild. Myndbandið er nú hvergi að finna á miðlum hreyfingarinnar.
„Vissir þú að ef við göngum í Evrópusambandið að þá er forsetinn okkar eiginlega bara til skrauts?“ var sagt í myndbandinu. „Í dag getur forseti skotið málum til þjóðarinnar og leyft henni að kjósa, svona eins og í Icesave. En ef við göngum í Evrópusambandið væri þessi hluti lýðræðisins bara tekinn af okkur.“
Málskotsrétturinn svokallaði, sem er bundinn í 26. grein stjórnarskrárinnar, heimildar forseta Íslands að synja lagafrumvörpum sem hafa verið samþykkt á Alþingi og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í myndbandinu er því haldið að málskotsrétturinn yrði „tekinn af okkur“ við inngöngu í ESB. „Þetta er bara hvernig Evrópusambandið virkar,“ var sagt í myndbandinu. „Það má því velta fyrir sér: Er þetta …