Bandaríkjamenn og Íranar hafa gefið frá sér misvísandi yfirlýsingar um stöðu samningaviðræðna vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Fulltrúar Ísraels og Líbanons funda á Ítalíu í dag.
Stjórnvöld í Katar, sem hafa reynt að miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans, segja tilraunir til að ná samningum standa yfir. Viðræðurnar miði að því að finna skammtímalausn sem gæti skapað grundvöll fyrir því að hefja formlegar samningaviðræður á ný.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður Bandaríkjanna við Íran væru hafnar á ný og að Íranar fengju nú sitt síðasta tækifæri til að skrifa undir góðan samning.
Esmail Baghei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, hafnaði því að viðræður við Bandaríkin væru í gangi. Einu viðræðurnar sem stæðu yfir væri samtal við Óman um að greikka fyrir skipaumferð við Hormússund.
Líbanar fordæma framgöngu Hezbollah
Fulltrúar Líbanons og Ísraels komu saman til viðræðna að nýju í Róm á Ítalíu í dag. Naim Qassem, leiðtogi Hezbollah, hefur gagnrýnt viðræðurnar harðlega og segir að þær færi Líbanon ekkert nema smán, niðurlægingu og vonbrigði.
Forsætisráðherra Líbanons, Nawaf Salam, hefur svarað gagnrýni Qassem. Hann segir samtökin hafa dregið Líbanon inn í tilgangslaust stríð. Þau hafi jafnframt hjálpað Ísrael með því að gefa ísraelska hernum tilefni til að ráðast inn í landið.
Stjórnvöld í Líbanon og Ísrael skrifuðu undir rammasamning í júní sem felur meðal annars í sér afvopnun Hezbollah og að Ísraelsher dragi sig frá suðurhluta Líbanons. Hezbollah hefur hafnað þeim skilyrðum alfarið og neitar að leggja niður vopn.