Þetta staðfestir Arnar Kormákur Friðriksson, réttargæslumaður eins skipverjanna um borð í Bandero, í samtali við Vísi. Hann kveðst ekki búa yfir upplýsingum um það hvort aðrir skipverjar hafi kært ákvörðun lögreglu.
Þá segir hann umbjóðanda sinn ekki vera lausan allra mála enn en lögregla hafi þegar kynnt honum ákvörðun um að hann þurfi að halda sig á höfuðborgarsvæðinu og sinna tilkynningarskyldu.
Gættu ekki meðalhófs
Sá kærði ákvörðun lögreglu um að meina skipverjum að fara frá borði en Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um kæruna síðdegis. Áhafnarmeðlimurinn vildi meina að ákvörðun lögreglu væri of íþyngjandi. Arnar Kormákur segist ekki hafa kynnt sér úrskurð héraðsdóms í þaula en niðurstaðan byggi á því að lögregla hafi ekki gætt meðalhófs.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að hann teldi það furðulegt af áhöfninni að halda því fram að ekki væri mannsæmandi að dvelja um borð í skipinu eftir að hafa gert það af sjálfsdáðum undanfarnar vikur úti á ballarhafi.
Skipið óhaffært og skipverjarnir mögulega sendir úr landi
Skipið sjálft var úrskurðað óhaffært af Samgöngustofu á föstudagskvöldið. Skipaskoðunarmenn stofnunarinnar fóru um borð á föstudaginn.
Öllum þeim 21 sem eru um borð var tilkynnt um mögulega brottvísun og endurkomubann á föstudaginn. Skjölin voru á íslensku en túlkur aðstoðaði lögreglu við þýðingu. Þá var lögmaður fyrir hvern og einn áhafnarmeðlim ræstur út á föstudaginn og eru því réttargæslumenn í tugatali. Andmælaréttur skipverja er liðinn.