Ísland fékk líka hótun um sprengju í flugvél, sem barst í tölvupósti á Keflavíkurflugvöll. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isvaia segir að hún hafi verið metin ótrúverðug.
Aegan Airlines, sem hafði áður tilkynnt um vél frá Þessalóniku til Mílanó, hefur tilkynnt um aðra vél sem var hótað og var á leið frá Aþenu til Vínar. Þá er fjöldi vélanna kominn uppí 21.
Greint hefur verið frá tveimur öðrum vélum sem hafa orðið fyrir hótunum.
Önnur þeirra er vél Air Serbia, sem var á leið frá Belgrad til Búkarest. Hún lenti heilu og höldnu.
Það sama á við um vél LOT, sem fór frá Varsjá til Parísar. Sú hótun barst áður en vélin fór í loftið og því var gerð öryggisleit um borð. Hún leiddi ekkert í ljós og vélinni var flogið þangað eftir það.
Vélarnar eru því alls orðnar 20 sem hafa orðið fyrir barðinu á hótunum í dag.
Tveir breskir flugvellir sem ekki hafði áður verið greint frá, Heathrow og Birmingham, fengu líka hótanir. Press Association greinir frá þessu. Stjórnendur flugvallanna töldu þessar hótanir ekki á rökum reistar og því hélt flugumferð áfram eins og venjulega.
Philip Baum, prófessor í flugöryggi við háskólann í Coventry, segir við breska ríkisútvarpið að fluggeirinn fái sprengjuhótanir á hverjum degi. Þessar hótanir virðast þó vera annars eðlis miðað við viðbrögðin.
Hann bætir því við að fólk sem setur sprengjur í vélar sé yfirleitt ekki að segja frá því fyrirfram heldur eftir á. Hættan sé hins vegar að ef hótunum fjölgar umtalsvert verði menn værukærir og taki þá kannski ekki eftir raunverulegri hættu.
Viðbúnaður var á flugvellinum í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu, þegar vél RyanAir frá London lenti en hún er ein þeirra sem var hótað með sprengju. Vélin sést lenda á myndskeiðinu hér að ofan. Slökkvilið beið við öllu búið en viðbúnaðurinn bendir þó ekki til þess að menn hafi haft áhyggjur af bráðri hættu vegna þessa.
Engar staðfestar upplýsingar hafa komið um hvaðan þessar hótanir hafa verið að berast. Ítalskir fjölmiðlar hafa þó greint frá því hvernig hótunin sem send var á flugvöllinn í Róm var saman sett.
Hún var send í nafnlausum tölvupósti sem var skrifaður á ítölsku. Efnislína póstsins var: „Viðvörun um hættu.“ Pósturinn var sagður skrifaður fyrir hönd „Baráttumanna fyrir ríki karlmannsins“. Skotmarkið væri femínistastjórnvöld og tilgangurinn væri að setja mark sitt á söguna. Þar var því hótað að lita himininn rauðan með sprengingum. Ekkert er vitað um þennan hóp ef hann er þá á annað borð til.
Flugvallaryfirvöld segja í yfirlýsingu að verið sé að rannsaka uppruna og kringumstæður hótunarinnar í samræmi við öryggisvenjur.
Hvorki Isavia né Icelandair hafa borist sprengjuhótanir í dag. Þetta staðfesta Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, og Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, við fréttastofu.
Samkvæmt upplýsingum á vef Keflavíkurflugvallar eru komur og brottfarir á áætlun.
„Við höfum heyrt af truflunum á nokkrum flugferðum víðs vegar um Evrópu,“ segir Heidi Alexander, samgönguráðherra Bretlands.
„Við erum með eitt öflugasta flugöryggiskerfi heims og höfum komið upp ferlum til að eiga við göbb og illgjarnar hótanir, og þannig hafa þessar hótanir verið,“ bætti hún við. Hún sagði að flugdeild lögreglunnar í Lundúnum myndi ráðfæra sig við viðeigandi yfirvöld. Hótanirnar séu teknar alvarlega.
Flugvöllurinn í Madrid fékk hótanir vegna þriggja farþegavéla sem voru á leiðinni þangað. Þetta staðfesti fjölmiðlaskrifstofa vallarins við Guardian. Þær voru skoðaðar við lendingu og engin sprengja fannst. Með þessari viðbót eru flugferðirnar sem sprengjuhótanirnar hafa beinst að orðnar 18 talsins.
Utanríkisráðuneytið hefur ekki gefið út sérstök tilmæli vegna sprengjuhótana sem flugfélög í Evrópu hafa fengið undanfarna daga en ráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála. Ráðuneytið á í virkum samskiptum við helstu samstarfsríki vegna atvikanna.
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins til fréttastofu.
Svar ráðuneytisins í heild sinni.
„Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með þróun mála og á í virkum samskiptum við helstu samstarfsríki Íslands vegna umræddra atvika, en hefur ekki gefið út sérstök tilmæli hvað þau varðar. Þá hafa samstarfsríki Íslands sömuleiðis ekki brugðist sérstaklega við umræddum tilvikum með slíkum hætti.“
Apostolos Tzitzikostas, samgöngumálastjóri Evrópusambandsins, segir enn of snemmt að skera úr um það hvort hótanirnar tengist.
Evrópusambandið fylgist náið með þróun mála og hefur verið í sambandi við þau lönd sem hafa orðið fyrir áhrifum.
„Það er of snemmt að draga ályktanir um það hvort atvikin tengist,“ segir hann.
Sérfræðingar í flugsamgöngum sem Guardian hefur rætt við segja hins vegar að hótanirnar virðist vera samstilltar.
Embætti ríkislögreglustjóra fylgist með atburðarásinni úti í heimi. Þetta segir Helena Rós Sturludóttir samskiptastjóri hjá embættinu.
Að öðru leyti tjáir ríkislögreglustjóri sig ekki frekar um málið að svo stöddu.
Eliran Almog, sérfræðingur í netöryggi sem fréttamiðillinn Sky News hefur rætt við, segir að fjöldi innihaldslausra sprengjuhótana í þessari viku gæti verið til þess fallinn að kanna viðbrögð.
Ásetningurinn að baki ítrekuðum hótunum gæti bæði verið að trufla samgöngur og sjá hvernig flugfélög, flugvellir og stjórnvöld bregðast við.
Hann bendir á að truflanir hafi verið á ólíkri nauðsynlegri starfsemi í vikunni. Þetta sóar bæði fé og getur dregið úr trausti almennings.
Flugvél Aer Lingus var á leið frá Dublin til Rómar þegar henni var snúið við yfir Frakklandi. Hún flaug í tæpa tvo tíma áður en sprengjuhótun barst. Flugmaður hringsólaði áður en hann lenti á herstöð í Evreux. Í byrjun myndbands má sjá flugvél Aer Lingus og leiðina sem hún flaug áður en hún lenti. Myndbandið er hljóðlaust.
Michele Robson, fyrrverandi flugumferðarstjóri, segir í viðtali við Sky News að magn hótana sem borist hafa sé óvenjulegt.
„Á öllum mínum starfsferli hef ég aldrei séð neitt þessu líkt.“
Hún segist muna eftir einni sprengjuhótun sem hafi borist meðan flugvélin var enn á flugi. „En ég hef aldrei séð þennan fjölda hótana á svo skömmum tíma.“
Hún segir þá staðreynd að nokkrar flugvélar hafi verið kyrrsettar vegna hótananna benda til þess að þær séu trúverðuglegar.
Hefur röskun á flugi vegna sprengjuhótana haft áhrif á þig eða ferðalagið þitt?
Við viljum heyra frá þér. Þú mátt gjarnan hafa samband við okkur í gegnum netfangið frettir@ruv.is. Þar getur þú einnig sent okkur myndefni.
Lögregla í Tékklandi segir engin sprengiefni hafa fundist um borð í fjórum flugvélum sem fengu sprengjuhótanir áður en þær lentu í Prag.
Málið er komið á borð deildar innan tékknesku lögreglunnar sem sinnir málum tengdum hryðjuverkum, öfgahyggju og netglæpum.
Flugher Búlgaríu sendi herflugvélar til að fylgja þremur vélum á vegum Ryanair, sem voru á leið til Sofiu frá Kaupmannahöfn, Madríd og Lundúnum, til lendingar. Ein vélin lenti á flugvellinum í Plodvdiv-flugvelli í Búlgaríu og hinar tvær á Vasil Levski-flugvellinum í Sofiu.
Ekkert grunsamlegt fannst um borð í flugvélunum, að sögn samgönguráðuneytis Ungverjalands. Leitað var í þeim þegar þær lentu.
Sprengjuhótanir hafa borist og haft áhrif á að minnsta kosti 15 flugferðir:
- Vél Aer Lingus frá Dublin á Írlandi til Rómar á Ítalíu, snúið til Evreuz í Frakklandi (EI-DEH)
- Vél Ryanair frá Madríd á Spáni til Sofíu í Búlgaríu (flugnúmer: FR6410)
- Vél Ryanair frá Kaupmannahöfn til Sofíu í Búlgaríu (flugnúmer: FR3606)
- Vél Ryanair frá Stansted-flugvelli í Lundúnum til Sofíu í Búlgaríu, snúið til Plovdiv í Búlgaríu (flugnúmer: FR1730)
- Vél pólska flugfélagsins LOT frá Varsjá til Brussel í Belgíu (flugnúmer: LO235)
- Vél WizzAir frá Malpensa í Mílanó á Ítalíu til Varsjá-Okęcie í Póllandi, snúið til Vínar í Austurríki (flugnúmer: W46387)
- Vél FinnAir frá Helsinki í Finnlandi til Fiumicino í Róm á Ítalíu (flugnúmer: AY1761)
- Vél FinnAir frá Helsinki í Finnlandi til Vínar í Austurríki (flugnúmer: AY1471)
- Fjórar flugvélar á leið til Prag í Tékklandi sem ekki er búið að bera kennsl á.
- Vél WizzAir frá Malpensa í Mílanó á Ítalíu til Búkarest í Ungverjalandi (flugnúmer: W43064)
- Vél Aegean Airlines frá Þessalóniku í Grikklandi til Malpensa í Mílanó á Ítalíu (flugnúmer: A3552)
- Vél Ryanair frá Portó í Portúgal til Malpensa í Mílanó á Ítalíu (flugnúmer: FR8953)
Hér fyrir neðan sagði að þetta væri í annað sinn í þessari viku sem svona hótanir berast en það er ekki alveg rétt. Hótanir hafa borist undanfarna daga, ekki bara á þriðjudag.
Á sunnudag barst hótun um sprengju í vél á leið frá Tel Aviv til Vínar. Henni var lent í Búlgaríu. Á mánudag var vél Wizz Air á leið frá Lundúnum til Sófíu lent í Ungverjalandi vegna sprengjuhótunar og eins og fyrr segir bárust sjö hótanir til flugfélaga á þriðjudag.
Samkvæmt upplýsingum á vef Keflavíkurflugvallar eru allar flugferðir á áætlun, bæði komur og brottfarir.
Þetta er ekki í fyrsta skipti í þessari viku sem sprengjuhótun hefur áhrif á flugferðir. Á þriðjudag hafði svipuð hótun áhrif á sjö flugferðir.
Sú hótun hafði áhrif á tvær flugvélar sem fóru frá Bretlandi, ein frá Heathrow-flugvelli og ein frá Manchester. Leitað var í vélunum og þeim beint annað en á áætlaðan áfangastað.
Öðrum flugvellinum í Varsjá í Póllandi, Modlin, var lokað eftir að flugvél sem var beint þangað lenti. Ítölsk herflugvél fylgdi flugvél Ryanair, sem kom frá Dublin á Írlandi, til Rómar eftir hótun.
Hótunin á þriðjudag hafði áhrif á flugferðir frá Bretlandi, Írlandi, Danmörku, Portúgal og Ítalíu. Vélunum var lent í Póllandi, á Spáni, Ítalíu og í Búlgaríu. Fjórar flugferðir voru á vegum flugfélagsins Ryanair en hinar á vegum Wizz Air, LOT og SAS.
Komiði sæl. Við hefjum þessa fréttavakt vegna frétta um sprengjuhótanir í farþegavélum í millilandaflugi í Evrópu í morgun.
Sprengjuhótanir hafa borist vegna fjölda farþegaflugvéla í millilandaflugi í dag. Vélarnar hafa verið á flugi víða í Evrópu.
Í engum tilvikanna hafa fundist sprengjur.