Hardcore-goðsögnin Lou Koller er látinn eftir baráttu við krabbamein. Sick Of It All kom tvívegis til Íslands og lék meðal annars á goðsagnakenndum tónleikum í bílakjallara Útvarpshússins árið 1999.
Lou Koller, söngvari og einn stofnenda hinnar áhrifamiklu New York-hardcoresveitar Sick Of It All, er látinn 59 ára að aldri.
Hljómsveitin greindi frá andláti hans í tilkynningu á samfélagsmiðlum á föstudag.
„Það er með ólýsanlegri sorg sem við tilkynnum alþjóðlegri hardcore-fjölskyldu okkar um andlát bróður okkar, Lou Koller. Missirinn sem við finnum fyrir er yfirþyrmandi,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur fram að Sick Of It All hefði fagnað 40 ára starfsafmæli á þessu ári. Félagar Kollers lýsa honum sem ástkærum vini og einstökum forsöngvara sem hafi getað lyft anda allra á tónleikum með brosi og kaldhæðinni athugasemd.
„Hann vann fólk á sitt band hvar sem við spiluðum, óháð menningu og í öllum heimshornum.“
Screenshot
Greindist með krabbamein árið 2024
Koller greindi frá því árið 2024 að læknar hefðu fundið æxli í vélinda hans sem næði niður í maga. Sick Of It All aflýsti í kjölfarið fyrirhugaðri tónleikaferð svo hann gæti einbeitt sér að meðferðinni.
Söfnun var sett af stað til að standa straum af lækniskostnaði og framfærslu Kollers meðan sveitin gat ekki ferðast. Hardcore- og rokksamfélagið brást vel við og safnaðist á endanum veruleg fjárhæð til stuðnings honum og fjölskyldu hans.
Í maí 2025 fékk Koller þær fréttir að hann væri laus við krabbameinið. Aðeins fjórum mánuðum síðar greindi hann hins vegar frá því að sjúkdómurinn væri kominn aftur.
„Baráttu hans er nú lokið og hann getur loksins hvílst. Vonandi getur hann með einhverjum hætti enn séð og fundið fyrir þeim fallegu og jákvæðu áhrifum sem hann skildi eftir sig í heiminum,“ segir í kveðju sveitarinnar.
View this post on Instagram
Tvívegis á Íslandi
Sick Of It All átti sterk tengsl við íslensku hardcore-senuna og kom tvívegis hingað til lands.
Fyrri heimsóknin var í september árið 1999 þegar sveitin lék á tónleikum í bílakjallara Útvarpshússins við Efstaleiti. Tónleikarnir eru löngu orðnir goðsagnakenndir meðal íslenskra rokk- og hardcore-aðdáenda, en talið er að yfir 700 manns hafi mætt. Íslenska hljómsveitin Mínus hitaði upp ásamt Bisund.
Sick Of It All sneri aftur til Íslands í júní 2003 og hélt þá tvenna tónleika á Gauki á Stöng, dagana 25. og 26. júní. Fyrri tónleikarnir voru opnir öllum aldurshópum og þar komu einnig fram Botnleðja og I Adapt. Á síðari tónleikunum, sem voru ætlaðir 18 ára og eldri, léku Botnleðja og Mínus með sveitinni.
Meðlimir Mínus hafa í gegnum tíðina gjarnan nefnt Sick Of It All sem einn af helstu áhrifavöldum sveitarinnar á mótunarárum hennar.

Ein áhrifamesta hardcore-sveit sögunnar
Lou Koller stofnaði Sick Of It All í Queens í New York árið 1986 ásamt Pete Koller, bróður sínum og gítarleikara sveitarinnar. Ári síðar kom út sjálfnefnd sjö tommu plata og varð sveitin fljótlega fastagestur á hinu sögufræga tónleikahúsi CBGB.
Fyrsta breiðskífan, Blood, Sweat and No Tears, kom út árið 1989 og Just Look Around fylgdi árið 1992. Stóra alþjóðlega stökkið kom síðan með plötunni Scratch the Surface árið 1994, þar sem finna má mörg þekktustu lög sveitarinnar.
Sick Of It All gaf alls út tólf breiðskífur og sú síðasta, Wake the Sleeping Dragon!, kom út árið 2018. Sveitin var einn af hornsteinum New York-hardcore-senunnar og hafði gríðarleg áhrif á hardcore-, pönk- og metalhljómsveitir víða um heim.
Lou Koller var allt frá upphafi andlit, rödd og óþrjótandi orkugjafi sveitarinnar.