Fiskþurrkun Samherja á Laugum verður lokað eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi fyrirtækisins. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu í gær að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefði ekki haft fullnægjandi upplýsingar um mögulega mengun frá vinnslunni og hefði því ekki mátt gefa út starfsleyfið.
Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar sem fréttastofa hefur undir höndum.
Í upplýsingum frá Samherja kemur fram að starfsfólki hafi verið greint frá þessu á fundi í morgun. Unnið er að því næstu daga að klára að vinna það hráefni sem er í vinnslunni. Þeim verður boðin vinna á Akureyri á meðan óvissa er um hvenær verður hægt að opna aftur á Laugum.
Samherji birti tilkynningu á vefnum rétt í þessu þar sem segir að lokunin sé mjög íþyngjandi fyrir starfsemina: „Sú ákvörðun úrskurðarnefndar að fella starfsleyfið úr gildi fyrirvaralaust er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft.“
Þar ítrekar Samherji að þeir hafi að öllu leyti uppfyllt skilyrði starfsleyfisins, úrskurðurinn snúi aðeins að annmörkum á málsmeðferð.
Íbúar kvartað undan „óþægilegri lykt“
Kæra barst til nefndarinnar frá fimm íbúum á Laugum í Þingeyjarsveit, einn þeirra rekur ferðaþjónustu 600 metrum frá vinnslunni og kvarta þau einna helst yfir lyktarmengun. Í viðauka við starfsleyfið svaraði heilbrigðiseftirlitið þessum athugasemdum íbúa þannig að erfitt væri að staðfesta lyktarmengun með mælingum og ekki til viðmiðunarmörk um lykt í íslenskum lögum og reglugerðum.
Samherji réðist í endurbætur á tækjum vinnslunnar fyrr á árinu sem áttu meðal annars að bæta lykt frá verksmiðjunni. Íbúar sögðu þrátt fyrir það enn berast megna fiskilykt yfir bæinn og kvörtuðu í sumar undan „óþægilegri lykt“. Nefndin telur greinilegt að Samherji hafi reynt að bæta úr en setur helst út á heilbrigðiseftirlitið fyrir að sinna ekki sinni skyldu við eftirlit með lyktmengun frá starfseminni.
Heilbrigðiseftirlitið ekki gert fullnægjandi hávaðamælingar
Eins kvörtuðu íbúar undan hljóðmengun og þar kom fram að í mælingum sem hafi verið gerðar hafi hávaði frá fiskþurrkuninni mælst innan leyfilegra marka. Hins vegar hafi mælingar heilbrigðiseftirlitsins á hávaða líka talist ófullnægjandi, þar sem ekki hafi komið fram á hvaða tíma dags mælingarnar voru gerðar.
Ár og vötn illa vöktuð og því ekki hægt að meta mengun
Og enn er svipaða sögu að segja af mögulegri vatnsmengun. Þar skorti fullnægjandi mælingar á þeim ám og vötnum sem vinnslan gæti haft áhrif á - þó Samherji lofi því að tæki og tól haldi mengun í algeru lágmarki - sé ómögulegt að meta áhrif á vatn á svæðinu nema fyrir liggi fullnægjandi upplýsingar um ástand þess.
„Breytir engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin leiði ekki til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki, enda byggði sú niðurstaða á ófullnægjandi gögnum um ástand þeirra,“ segir í úrskurði nefndarinnar.
Að lokum bendir nefndin á að Laxá í Aðaldal njóti sérstakrar verndar, samkvæmt lögum um verndun Mývatns og Laxár, því hafi verið enn ríkari ástæða til að hafa betri vöktun með vatnshlotum í grennd við vinnsluna.
Uppfært kl. 11:45: Í fyrstu útgáfu fréttarinnar var sagt að vinnslunni hefði verið lokað í morgun. Hið rétta er að starfsfólk var upplýst um væntanlega lokun í morgun, en unnið er að því næstu daga að klára vinnslu á hráefni sem þar er. Svo verður vinnsla stöðvuð. Beðist er velvirðingar á þessu.