Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar tvö mál eftir Landsmót hestamanna á Hólum um helgina, kynferðisbrot og líkamsárás sem var hvort tveggja tilkynnt í fyrrakvöld.
Að öðru leyti segir Sigurður Hólmar Kristjánsson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, helgina hafa gengið áfallalaust.
Hann segir umferð hafa gengið mjög vel um helgina þó að hún hafi verið mikil.
Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi vestra vegna hvassviðris og lögregla gerir ráð fyrir þungri umferð í dag. „Það er svona áhyggjuefni í daginn, hvernig þetta þróast. En það er svo sem búið að vera með kynningar á því á samskiptamiðlum að benda fólki á að fylgjast með veðurspá og veðri og færð áður en það fer af stað,“ segir Sigurður.
„Við vonum að fólk hafi vaðið fyrir neðan sig í þeim efnum.“