Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tryggingafélagið VÍS til að greiða sendibílstjóra tæplega 15,9 milljónir króna auk vaxta vegna alvarlegs umferðarslyss sem hann lenti í sumarið 2020.Slysið varð þegar bifreið var ekið í veg fyrir mótorhjól mannsins með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu og hafnaði á gangstétt. Hann hlaut meðal annars áverka á höfði, sköflungi og úlnlið og dvaldi í þrjá daga á gjörgæslu.Varanleg örorka mannsins var síðar metin 90 prósent, að teknu tilliti til fyrri örorku vegna slyss árið 2018.
Kastaðist af mótorhjóli og endaði á gjörgæslu – fær tæpar 16 milljónir frá VÍS