Íris Helga Jónatansdóttir kannaðist við lítið af því umsáturseinelti sem hún er sökuð um gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og börnum tveggja þeirra og fjölskyldu.
Fyrsti dagur aðalmeðferðar fór fram í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæran gegn Írisi Helgu er löng og telur hátt í sjötíu ákæruliði. Réttað var í málinu þangað til klukkan 13:00 og þá tekið hlé og hefst málið að nýju 13:30.
Dagurinn hefur að mestu farið í það að taka skýrslu af Írisi Helgu sjálfri þar sem ákærandi hefur borið undir hana atvik sem eiga að hafa átt sér stað á umræddu tímabili.
Helst hafa atvikin sem farið var yfir í dag tengst manni sem hún var í sambandi við þangað til árið 2021. Farið var yfir hvern ákærulið fyrir sig og þeir bornir undir Írisi Helgu. Áætlað er að aðalmeðferð taki allt að sex daga og eru ákæruliðir um sjötíu talsins.
Kannast ekki við að hafa mætt með fóstur í krukku
Það fyrsta sem ákæruvaldið bar undir Írisi var atvik sem á að hafa gerst 2022. Hún var þar sökuð um að hafa farið að heimili umrædds manns með krukku sem hún hafi sagt að innihéldi fóstur sem hún hafi misst eftir að hafa gengist undir þungunarrof. Hún neitaði þessu.
„Svona sögur býr enginn til nema karlmaður, því enginn myndi mæta heim með fóstur í krukku eftir þungunarrof,“ sagði Íris Helga.
Segir manninn hafa áreitt dóttur sína
Íris Helga viðurkenndi að hafa farið að heimili mannsins umrætt kvöld en það hefði hún gert til þess að fá manninn til þess að hætta að áreita dóttur sína, sem var 12 ára á þessum tíma. Það hefði hann gert með því að gefa henni nammi og blóm, sem Íris sagði hafa verið mjög óviðeigandi. Þá hefði hann einnig áreitt þær mæðgur eftir að upp úr sambandinu slitnaði.
Þrátt fyrir að kannast ekki við fóstrið í krukkunni viðurkenndi Íris að hafa í reiði sinni sparkað í dekk á bíl mannsins en ekki valdið neinum skemmdum
Hún segist þá hafa haft samband við lögreglu strax um kvöldið til þess að tilkynna atvikið.
Íris Helga segir að hún hafi kynnst manninum í gegnum sameiginlega vinkonu. Þau hafi verið í sambandi þangað til árið 2021. Sambandið hafi ekki endað vel.
Sagðist ekki kunna á tölvur
Íris Helga sagðist ítrekað við réttarhöldin ekki kannast við reikninga á samfélagsmiðlum sem stofnaðir voru í tölvu hennar eða síma.
Hún sagði að á þeim tíma sem þeir voru stofnaðir hefðu fleiri haft aðgang að tölvu sinni og nefndi þar á meðal einn sambýlismanna sinna sem hún var í sambandi við á þeim tíma.
„Tölvan mín er bara tölva heimilisins, það hafa allir aðgang að henni,“ sagði Íris Helga.
Margvíslegir aðgangar á samfélagsmiðlum voru stofnaðir undir ýmsum nöfnum og er talið að Íris Helga hafi notað þá til þess að hafa samband við mennina eða dreifa óhróðri um þá.
Íris Helga sagðist ítrekað ekki kunna á tölvur eða samfélagsmiðla.
Sagðist vera hvatvís
Það sem Íris Helga játaði að hafa gert sagðist hún hafa gert í hvatvísi. Meðal annars játaði hún að hafa brotið blómavasa þegar hún kom að heimili mannsins eitt skipti. Í honum hafi verið blóm sem hún segir að stíluð hafi verið á hana og dóttur hennar sem
Þá játaði Íris Helga að hafa birt mynd af manninum á Instagram-síðu sinni þar sem hún skrifaði undir að maðurinn væri mjög veikur. Hún sagðist þó aðeins hafa birt myndina í um 10 mínútur.
Grínast með að valda manninum ofbeldi
Íris Helga er einnig sökuð um að hafa farið þess á leit við þrjá menn að þeir myndu beita manninn ofbeldi. Íris Helga. Hún viðurkenndi að hafa rætt við mennina sem hún sagðist þekkja en lýsti því yfir að um grín hefði verið að ræða.
„Eins og þessi á skilið að fá stól í andlitið, eða eitthvað svoleiðis,“ sagði Íris Helga.
Hún segir suma mennina hafa vitað af áreitinu sem Íris Helga átti að hafa orðið fyrir af hendi Ólafs. Hún segir að einn þeirra hafi sagt að hún gæti leitað til sín ef það væru einhver vandræði.
Hún sagðist þó ekki sjá neitt saknæmt í samskiptum sínum við mennina. Þetta hafi allt saman verið grín.