Ísland undirlagt hræðsluáróðri
„Tjáningarfrelsið er svo mikilvægt fyrir lýðræðislegt samfélag,” segir Þórhildur Sunna Ævardóttir, framkvæmdastjóri alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Courage International. Sem fyrrum þingmaður og sérhæfð í mannréttindum hefur hún í ófáum málum barist gegn þöggunartilburðum valdsins gagnvart þeim sem fletta ofan af misnotkun þess.
Samtökin Courage International berjast fyrir vernd blaðamanna, fjölmiðlafrelsi og tjáningarfrelsi; frjálsu flæði upplýsinga og friðhelgi einkalífsins. Síðan árið 2014 hafa þau helgað sig því að vernda uppljóstrara og blaðamenn sem sitja undir árásum, þó aðallega í Bandaríkjunum. Veigamestu verkefni samtakanna hafa verið stuðningur við Edward Snowden og barátta fyrir frelsi Julian Assange, stofnanda þeirra.
Fyrsta verkefni Courage hérlendis var þátttaka í undirbúningi fyrir fundinn Þjóð gegn þjóðarmorði sem haldinn var í öllum landshlutum síðastliðinn september. „Þjóðarmorð Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni sem nú stendur yfir hefur kostað fleiri blaðamenn lífið en öll stríð frá upphafi fyrri heimstyrjaldar samanlagt og erindi Courage því brýnt í þessu samhengi,“ skrifaði Þórhildur Sunna á Facebook af því tilefni.
Nú hafa þau stofnað til frjálsra félagasamtaka í Brussel undir alþjóðlegum hatti Courage International AISBL sem starfa munu í „stöðugt flóknara alþjóðaumhverfi“ – líkt og segir á heimasíðu þeirra. Því felst hluti starfsins í að tendra vitundarvakningu …