Í frétt RTÉ segir að í yfirlýsingu hafi komið fram að afstaða RTÉ sé óbreytt og vísað til stöðunnar á Gasa og mannúðarkrísunnar sem enn er í gangi þar vegna stríðs Ísraela á Gasa. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að RTÉ hafi þungar áhyggjur af því að enn sé alþjóðlegum fjölmiðlum hindraður aðgangur að svæðinu.
Greint var frá því fyrr í þessum mánuði að stjórn Ríkisútvarpsins hafi ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í keppninni og að líklega muni það ekki liggja fyrir fyrr en í desember.
Darina Nikolaeva Yotova, eða Dara, sigraði keppnina í vor með laginu Bangaranga sem haldin var í Vín í Austurríki. Keppni næsta árs verður í Burgas í Búlgaríu frá 11. til 13. maí.
Verði saknað
Haft er eftir Martin Green, framkvæmdastjóra keppninnar, í frétt RTÉ að Eurovision þyki miður að þau ætli ekki að taka þátt en að þau virði ákvörðunina.
„Þau eru enn mikils metinn meðlimur fjölskyldunnar og verður saknað,“ bætti hann við og að EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, myndi halda áfram að vera í samtali við RTÉ og að þau voni að þau snúi aftur í keppnina síðar.
Írar, eins og aðrar þjóðir sem ekki voru með í fyrra, tóku þá ákvörðun eftir að EBU tilkynnti að Ísraelum yrði leyft að taka þátt en hávært ákall var frá þessum þjóðum um að þeim yrði vísað úr keppni líkt og Rússum var við innrás í Úkraínu.
Hollendingar hafa áður tilkynnt að þeir ætli ekki að taka þátt í keppninni á næsta ári. Ekki er búið að tilkynna hverjir taka þátt. EBU tilkynnti fyrr á þessu ári að nýjar reglur muni vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.
Írar tóku fyrst þátt í Eurovision árið 1965 og hafa unnið sjö sinnum, síðast árið 1996 þegar Eimear Quinn sigraði með lagið The Voice.