Hörgársveit komin yfir þúsund íbúa – fjölgað um 83 prósent á áratug

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir 1.001 talsins. Þeim hefur fjölgað um 454 frá árinu 2016, þegar íbúarnir voru 547, eða um 83 prósent á tíu árum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Hjónin Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson eru íbúar númer 1.000 og 1.001 og fengu afhent sérstakt viðurkenningarskjal í tilefni tímamótanna.
Tæplega fjórðungur íbúa undir 18 ára aldri
Af íbúum sveitarfélagsins eru 246 börn og ungmenni undir 18 ára aldri, eða um 24,6 prósent. Sveitarfélagið segir það undirstrika mikilvægi öflugs skóla-, íþrótta- og frístundastarfs.
Samhliða fólksfjölguninni hefur verið unnið að uppbyggingu innviða. Meðal framkvæmda undanfarinna ára eru stækkanir leikskólans Álfasteins og Þelamerkurskóla til að mæta aukinni þörf fyrir þjónustu við börn og fjölskyldur.
Tækifæri í vaxandi samfélagi
Í tilkynningunni segir að fjölgun íbúa skapi tækifæri til að efla atvinnulíf, þjónustu og félags- og menningarstarf. Nýir íbúar komi jafnframt með þekkingu, reynslu og hugmyndir sem geti nýst samfélaginu.
Hörgársveit býður hjónin velkomin og þakkar íbúum fyrir þátt þeirra í uppbyggingu sveitarfélagsins.