Charles Spencer, bróðir Díönu prinsessu, segist lengi hafa velt því fyrir sér hvort meiri umhyggja í garð Harry Bretaprins eftir dauða móður hans hefði getað hjálpað honum síðar á lífsleiðinni.Daily Mail hefur birt kafla úr bók hans, Swan Song: Diana, My Sister, sem kemur út eftir helgi, en í einum kaflanum rifjar hann upp útfarardaginn 6. september 1997. Þar lýsir hann sérstaklega áhyggjum sínum af Harry, sem var aðeins tólf ára þegar móðir hans lést.
Horfði á Harry eftir útför Díönu og hefur aldrei gleymt því sem hann sá