Gunnar Smári Egilsson greinir frá því í færslu á Facebook í dag að 31 ár sé liðið frá því að hann hætti að drekka áfengi. Hann segist þakklátur fyrir árin sem liðin eru og lýsir jafnframt ánægju sinni með lífið, þrátt fyrir að líkaminn sé farinn að láta á sjá.„Í dag er 31 ár síðan ég hætti að drekka og ekki margt um það að segja, nema allt gott. Ég er ósköp feginn og þakklátur fyrir þennan tíma og fyrir að vera á lífi, enn þá spriklandi í hausnum þótt ég sé haltur og illt í bakinu.“
Gunnar Smári fagnar stórum áfanga í dag