Gæsluvarðhald yfir níu sem grunaðir eru um aðild að stærsta kókaínsmygli Íslandssögunnar hefur verið framlengt til 1. september. Þar af eru þrír Íslendingar og sex útlendingar, meðal annars frá Brasilíu og Rúmeníu.
Þeir eru grunaðir um að smygla 106 kílóum af kókaíni í sjókistu súrálsskipsins Koznitza sem sigldi hingað úr höfn í Norður-Brasilíu.
Jón Sigurgeirsson lögreglufulltrúi segir málið mjög umfangsmikið og mikinn tíma fara í að yfirfara muni og tæki. Lögregla hafi ekki handtekið fleiri einstaklinga eftir að nímenningarnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Spurður um hvort smyglið tengist Sverri Þór Gunnarssyni, sem var ákærður fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi í Brasilíu 2023, segir Jón það ekki sérstaklega til rannsóknar.
Lögregla vinni málið ekki í beinu samstarfi við yfirvöld erlendis en Jón segir öllum viðeigandi upplýsingum miðlað í gegnum Europol.