Boðað hefur verið til stutts og óformlegs fundar í næstu viku milli Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Delcy Rodriguez, sitjandi forseta Venesúela, meðan á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna stendur.
Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, greindi frá fundinum á blaðamannafundi í gær.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem forsetarnir hittast en Rodriguez hefur setið í embætti frá því bandarískir hermenn námu Nicolas Maduro á brott í janúar og fluttu til Bandaríkjanna. Þar situr hann í gæsluvarðhaldi ásamt eiginkonunni Ciliu Flores og bíður réttarhalda meðal annars fyrir aðild að umfangsmiklum fíkniefnaviðskiptum.
Margvíslegar hreytingar í farvatninu
Stjórnvöld beggja ríkja gerðu umfangsmikinn olíusamning í ágúst þar sem Bandaríkjunum er veitt meirihlutastjórn yfir milljörðum tunna af olíuforða landsins. Nú stendur yfir önnur lota samningaviðræðna stjórnar og stjórnarandstöðu Venesúela um pólitískar endurbætur í landinu.
Í fyrstu lotu viðræðnanna náðist samkomulag um að endurskipuleggja hæstarétt landsins og að tilraun verði gerð til að leysa út um fjóra milljarða úr gullforða Venesúela sem liggur í Englandsbanka.
Tilgangurinn er að fjármagna uppbyggingu eftir mannskæða jarðskjálftasem riðu yfir Venesúela í júní. Í yfirstandandi lotu á að tryggja pólitískt frelsi og afnema ritskoðun.
Stjórnvöld afléttu nýverið lokun á nokkrum fréttavefjum en stjórnarandstaðan telur það ekki duga. Hún leggur mikla áherslu á að pólitískir fangar verði látnir lausir, dómskerfið verði endurskipulagt og gengið til frjálsra kosninga svo fljótt sem auðið er.