Þingfesting í málinu hófst klukkan 10 í morgun og salir 101 og 102 í dómhúsinu við Lækjartorg hafa verið teknir frá til klukkan 16 síðdegis.
Ákærðu í málinu eru alls 71 en einn þeirra sætir aðeins upptökukröfu í málinu. Vegna þess mikla fjölda sem sætir ákæru var þeim skipt upp í sjö hópa en lokið var við að fá afstöðu meðlima sjöunda hópsins laust fyrir klukkan 12:30.
Þá var gert hádegishlé og eftir það verður farið yfir hvernig skal farið með þá ákærðu sem ekki tókst að birta ákæruna fyrir og þá sem ekki mættu í þingfestinguna, þrátt fyrir heppnaða birtingu.
Fjórir játuðu
Við þingfestinguna játuðu fjórir ákærðu sök samkvæmt varakröfu ákæruvaldsins um peningaþvætti af gáleysi og ákæruvaldið féllst á þær málalyktir. Átján ákærðu fengu frest til þess að gefa upp afstöðu sína til 11. nóvember næstkomandi, þegar fyrirtaka verður í málinu.
35 ákærðu neita sök í málinu, þar á meðal mennirnir tveir sem ákærðir eru fyrir að hagnýta sér galla í netbanka Landsbankans, sem var tilkominn vegna villu hjá Reiknistofu bankanna, til þess að svíkja út tæplega 96 milljónir króna.
14 ákærðu mættu ekki og boðuðu ekki forföll. Vænta má að útivistardómur falli í tilfelli þeirra flestra. Það þýðir að málið verður dómtekið án þess að þeir haldi uppi vörnum og sekt þeirra telst sönnuð.
Allt að 53 í aðalmeðferð
Ákveði allir átján sem fengu frest að halda uppi vörnum í málinu verða alls 53 sem það gera í aðalmeðferð. Dag- og staðsetning aðalmeðferðar verður ákveðin utan réttar þegar fyrirtakan hefur farið fram þann 11. nóvember.
Vænta má að Héraðsdómur Reykjavíkur þurfi að taka sal á leigu undir aðalmeðferðina enda rúmast svo umfangsmikil aðalmeðferð ekki í dómhúsinu við Lækjartorg.