Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum, segir þremenningana hafa verið í haldi frá 28. júlí.
Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um rannsóknina eða ætluð fíkniefni að svo stöddu.
Ekkert heyrst frá komudeginum
Greint var frá því í gær að aðstandendur fólksins hefðu ekkert heyrt frá því frá komunni til Íslands.
Um er að ræða hina 34 ára Estefaníu Arboleda Herrera, hinn 54 ára Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkonu hans, Elisabeth Martínez Quinchia, sem er 57 ára. Þau eru frá Medellín í Kólumbíu og höfðu verið á ferðalagi um Evrópu.
Í tilkynningu sem barst fréttastofu í gærkvöldi kom fram að síðast hefði frænka þeirra rætt við þau eftir að þau lentu á Keflavíkurflugvelli þriðjudaginn 28. júlí. Þau hefðu þá verið að leggja af stað til Reykjavíkur.
Þremenningarnir áttu bókaða gistingu á Center Hotels Plaza en að sögn aðstandenda skiluðu þau sér ekki þangað. Farsímar þeirra virtust jafnframt hafa verið óvirkir frá komudeginum, sem aðstandendur sögðu mjög óvenjulegt.
Leituðu upplýsinga á samfélagsmiðlum
Aðstandendur birtu færslur í Facebook-hópnum Latinos en Islandia í von um að fá upplýsingar um ferðir þremenninganna.
Af ummælum undir færslunum að dæma höfðu þau ætlað að dvelja hér á landi í um tvo sólarhringa og halda síðan aftur til Spánar. Nú liggur fyrir að þau hafa verið í haldi hér á landi allan þann tíma.