Erling Haaland hefur minnt Wayne Rooney á veðmál sem enski knattspyrnugoðsögnin lagði sjálfur til í beinni útsendingu hjá BBC fyrir leik Noregs og Brasilíu á heimsmeistaramótinu.
Rooney sagði í þættinum að ef Noregur kæmist í fjórðungsúrslit myndi hann róa árabát niður ána Mersey í Liverpool. Ummælin komu eftir að hann lýsti yfir mikilli trú á að Brasilía myndi slá Norðmenn út.
View this post on Instagram
Það fór þó á annan veg. Noregur vann Brasilíu 2-1 og tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum, þar sem Erling Haaland skoraði enn á ný.
„Maður stendur við orð sín“
Eftir sigurinn rifjaði BBC upp veðmálið og Rooney sagði brosandi að hann væri maður orða sinna. Hann sagðist jafnframt ætla að fá fyrrverandi landsliðsmennina Micah Richards og Joe Hart með sér í róðurinn.
Rooney bætti þó við í gamansömum tón að kannski væri einfaldara ef BBC gæti útvegað þeim bát á Hudson ánni í New York í stað Mersey vegna dagskrárinnar.
Haaland rukkar Rooney
Erling Haaland lét veðmálið ekki gleymast og minnti Rooney á loforðið á samfélagsmiðlum eftir að Noregur tryggði sér sæti í átta liða úrslitum.
Nú margir bíða þess nú hvort Rooney standi við orð sín og láti verða af róðrinum sem hann lofaði.