Síðasta áætlunarferð Baldurs um Breiðafjörð verður 5. október en þá fer skipið í slipp og er áætlað að vinnan taki fjórar til sex vikur. Farþegaskipið Ingólfur frá Ísafirði siglir út í Flatey á meðan Baldur er í slipp, en engar áætlunarsiglingar verða yfir fjörðinn, frá Stykkishólmi til Brjánslækjar.
Töluvert hringl var á siglingum um Breiðafjörð í sumar þegar sinna þurfti áætlunarsiglingum milli lands og Vestmannaeyja á Baldri. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir haust og vor besta tímann til að taka Baldur í slipp.
„Við getum heldur ekki verið að taka skipið úr siglingu yfir háveturinn, þá lokast fjallvegir og þá þarf Baldur að vera í siglingum. Við viljum alls ekki að þetta gerist á sumrin, því þá er háannatími í ferðaþjónustu. Það hafa allir skilning á því að Baldur eins og önnur skip þurfi að fara í slipp,“ segir Jakob. Hann gagnrýnir þó að fyrirvarinn hefði mátt vera meiri.
„Bara það þarf að vera fyrirvari á þessu og góður undirbúningur. Það er eitthvað sem Vegagerðin mætti aðeins horfa inn á við og bæta það.“
Ingólfur siglir þrisvar í viku til Flateyjar
Yngvi Eysteinsson, rekstrarstjóri Ferjuleiða sem sjá um rekstur Baldurs, segir að Ingólfur, sem hafði áður leyst Baldur af, eigi að sigla þrisvar sinnum í viku til Flateyjar. Ingólfur er töluvert minna skip og aðeins hugsað til farþegaflutninga.
Áður en Baldur fer í slipp verður fyllt á vatnstankana í Flatey og vonast Yngvi til að það eigi eftir að duga íbúum þar þangað til Baldur snýr aftur.