Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, veltir því fyrir sér hvort Íslendingar geti ekki að minnsta kosti verið sammála um eitt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið: að samfélagið verði á verri stað eftir umræðuna, sama hvort niðurstaðan verður já eða nei.
„Við erum samt öll sammála um það að sama hvort svarið verði já eða nei eftir kosningar þá erum við sem samfélag á verri stað, það er meiri sundrung og minna samfélag, e haggi?!“ skrifaði hann.
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst og verður spurt hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Kristrún vildi ekki fara af stað með mál sem klýfur þjóðina
Ummæli Dóra eru ekki síst athyglisverð í ljósi þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði sjálf mikla áherslu á samstöðu þegar Evrópumálin voru rædd áður en hún komst til valda.
Í september 2023 greindi Útvarp Saga frá því, eftir viðtal við Kristrúnu, að ESB aðild væri ekki á dagskrá hjá Samfylkingunni þar sem flokkurinn vildi ekki fara af stað með mál sem ljóst væri að gæti klofið þjóðina.
Kristrún sagði þá sjálf að hún sæi ekki fyrir sér að almenn samstaða væri um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
„Ég er bara hreinskilin með það að ég er að bjóða krafta mína í að leiða næstu ríkisstjórn og ég sé ekki fram á það að það sé almenn samstaða á Íslandi um að ganga inn í Evrópusambandið,“ sagði Kristrún.
En það er spurning hvort lesendur Nútímans séu sammála Dóra um að samfélagið verði á verri stað, sama hver niðurstaðan verður.
Við erum samt öll sammála um það að sama hvort svarið verði já eða nei eftir kosningar þá erum við sem samfélag á verri stað, það er meiri sundrung og minna samfélag, e haggi?!
— Halldór Halldórsson (@doridna) August 23, 2026