Framkvæmdir við sautján hæða hótelturn við Skúlagötu hafa verið stöðvaðar. Félagið sem á bygginguna skuldaði rúma tíu milljarða króna um síðustu áramót. Arion banki segir unnið að lausn málsins.
Demókrataflokkurinn hefur svo gott sem tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Prófessor í stjórnmálafræði, segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata.
Dóttir Írisar Helgu Jónatansdóttur sagði bróður sambýliskonu eins brotaþola í máli móður hennar hafa ráðist inn á heimili þeirra og hótað að drepa þær. Barnsfaðir Írisar Helgu vildi ekki tjá sig þegar hann var kallaður sem vitni í morgun.
Iceland Airwaves hófst í morgun þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti tónlistarhátíðina formlega af stað á opnunarhátíð hennar á hjúkrunarheimilinu Grund.
Í sportinu fjöllum við um leik handboltalandsliðsins í kvöld og förum yfir stuðið í Meistaradeild Evrópu.