Dagný Ósk Vestmann er gift tveggja barna móðir sem greindist með brjóstakrabbamein árið 2018. Hún greindist aftur með meinið árið 2023 og hafði það þá dreift sér í eitla, lifur og bein. Baráttan við þennan illvíga sjúkdóm hefur valdið miklu álagi á Dagnýju og fjölskyldu hennar, sem nærri má um geta, en einnig orðið þeim að fjárhagslegri áskorun. Meginmarkmið Dagnýjar núna er að nýta vel þann tíma sem hún á eftir með ástvinum sínum til að skapa góðar minningar sem munu lifa um ókomin ár.
Dagný berst við krabbamein sem hefur dreift sér – Vill nota tímann til að skapa dýrmætar minningar