Er þetta meðal þeirra 39 mála sem skráð voru í kerfi lögreglu í dag. Innbrotinu er ekki lýst nánar í yfirliti lögreglu um verkefni dagsins.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
Í sama hverfi handtók lögregla einn vegna líkamsárásar og var hann í kjölfarið vistaður í fangageymslu lögreglu. Í hverfi 105 barst lögreglu tilkynning um vinnuslys en kona hafði skorið sig í fingur og hlaut minni háttar meiðsli.
Lögregla hafði að auki afskipti af þó nokkrum ökumönnum. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur. Tveir fyrir að aka á 112 kílómetrum á klukkustund, einn á 122 og annar á 132, allir á vegum þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.
Þrír voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og voru báðir lausir að sýnatöku lokinni. Þá voru tveir stöðvaðir fyrir að tala í farsíma undir stýri og sektaðir fyrir vikið.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is