Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram gegn Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseta landsins, í forsetakosningum í október.
Flavio Bolsonaro er elsti sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu. Hinn síðarnefndi var í fyrra sakfelldur fyrir að hafa skipulagt valdarán gegn Lula og situr í stofufangelsi. Þeir áttust við í forsetakosningum 2022.
Á fundi með stuðningsmönnum Frjálslynda flokksins í São Paulo hét Bolsonaro yngri því að lækka skatta og skera upp herör gegn glæpum í landinu, yrði hann kjörinn. Hann lagði áherslu á að hann ætlaði að halda pólitískri arfleifð föður síns á lofti.
Nýtur stuðnings Mileis og Netanjahú
Javier Milei, forseti Argentínu, hélt ræðu á fundinum þar sem hann gagnrýndi Lula og sagði Bolsonaro geta bjargað Brasilíu undan sósíalisma. Á fundinum voru einnig flutt skilaboð frá Bolsonaro eldri í myndbandi sem gert var með aðstoð gervigreindar. Þá var einnig flutt myndbandsávarp frá Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Nú þegar hafa nokkrir lýst yfir framboði í forsetakosningunum sem verða haldnar 4. október. Til þess að hljóta kjör þarf frambjóðandi að fá meirihluta atkvæða. Nýleg skoðanakönnun sýnir að ef til seinni umferðar kemur, þar sem kosið yrði á milli Lula og Bolsonaros, þá styðja 48% Lula en 43% Bolsonaro. Ef til seinni umferðar kemur, þá verður hún haldin 25. október.