Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin og Ísrael hafi samþykkt að bíða með frekari árásir á Írana, að því gefnu að samningar um endalok stríðsins náist fljótlega. Hann vill að Íranar opni Hormússund tafarlaust og bundinn verði endir á kjarnorkuógn Írana.
Bandaríkjaforseti hafði hótað því að ráðast á Írana af fullum þunga. CNN greindi frá því að Bandaríkin og Ísrael ætluðu að gera sameiginlegar árásir, jafnvel um helgina, þar sem olíuinnviðir og raforkuverð yrðu hugsanleg skotmörk.
Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti á Truth Social í nótt segir hann að Bandaríkin séu tilbúin að gera aðrar árásir á Íran af svo miklum krafti að annað eins hafi ekki sést síðan í síðari heimsstyrjöld.
Hann sagði að Íranar og fleiri ríki í Mið-Austurlöndum hefðu beðið hann um að gera ekki árásir.
Krónprinsinn sagður hafa talað Trump af því að gera árásir
Fréttastofan Axios segir eftir ónafngreindum háttsettum bandarískum embættismanni að sádíarabíski krónprinsinn, Prince Mohammed Bin Salman, hafi hringt í Bandaríkjaforseta til að tjá áhyggjur sínar af fyrirhuguðum árásum á Íran.
Hann er sagður hafa hvatt Trump til að draga úr spennunni og hætta við árásirnar. Fréttaveita AFP segir að Hvíta húsið hafi ekki svarað beiðni um viðbrögð við þessum ummælum.
Bandaríkjastjórn varaði bandaríska ríkisborgara í Mið-Austurlöndum við því í gær að átök gætu stigmagnast í heimshlutanum. Bandaríkjamönnum var ráðlagt að yfirgefa Mið-Austurlönd eða vera tilbúnir til að fara með skömmum fyrirvara ef átök stigmagnast.
Fólki var ráðlagt að fylgjast með upplýsingum um flug og fylgja varnaðarorðum yfirvalda í hverju landi.