Ariana Grande útskýrir hlé frá sviðsljósinu

Söngkonan Ariana Grande hefur útskýrt ákvörðun sína um að draga sig í hlé frá opinberu lífi eftir að tónleikaferðalagi hennar, Eternal Sunshine Tour, lýkur.
Um helgina greindi talsmaður Grande frá því að hún hygðist taka sér hlé vegna „endalausrar og viðvarandi opinberrar gagnrýni“. Á tónleikum í Chicago ákvað söngkonan hins vegar að ávarpa aðdáendur sína beint og útskýra ástæðurnar.
„Stundum, þegar fréttir berast sem koma ekki beint frá mér, geta hlutirnir orðið ýktir. Ég vildi því tala beint við aðdáendur mína í kvöld því mér þykir svo vænt um ykkur,“ sagði Grande.
Hún lagði áherslu á að ákvörðunin hefði ekki verið tekin í flýti eða sem viðbrögð við nýlegri umræðu.
„Tilkynningin sem birt var í gær var hvorki skyndileg né til komin sem viðbragð. Ég hafði ákveðið þetta fyrir löngu og gert hljóðláta áætlun. Þetta var vel ígrunduð ákvörðun sem ég tók af öryggi.“
Grande sagði að aðdáendur hefðu haft áhyggjur af því að neikvæð umræða væri að hafa slæm áhrif á hana, en hún hafnaði því.
„Ég vil að þið vitið að margt getur verið satt á sama tíma. Fólk þarf stundum að setja mörk og taka sér hlé. En jafnframt hefur þetta verið og mun halda áfram að vera besta reynsla starfsferils míns og sköpunarlífs. Ekkert mun spilla því.“
Hún bætti við að ástin frá aðdáendum og gleðin við að skapa tónlist skiptu meira máli en allt annað.
„Ekkert af því sem sagt er getur afbakað raunveruleikann eða verið sterkara en kærleikurinn sem við deilum og tilfinningin sem fylgir því að skapa list með fólki sem ég elska og ber virðingu fyrir.“
Söngkonan sagði einnig:
„Ég tek þetta með mér. Hitt ruslið er ekki mitt að bera, þannig að ég ber það ekki.“
Undanfarnar vikur hafa margir aðdáendur lýst áhyggjum af útliti Grande eftir útgáfu myndbandsins við nýja lagið Petal en hún þykir hafa grennst ískyggilega mikið. Í kjölfarið staðfesti talsmaður hennar að hún hygðist stíga tímabundið út úr sviðsljósinu eftir að tónleikaferðalaginu lýkur.
Samkvæmt talsmanni Grande ætlar hún að ljúka ferðalaginu „heilbrigð og glöð“ áður en hún tekur sér „vel verðskuldað hlé frá opinberum störfum og framkomum“, sem hafi orðið tilefni „endalausrar og viðvarandi opinberrar gagnrýni.“
Grande á eftir tvo tónleika í Chicago áður en hún heldur til Bretlands, þar sem hún verður með tíu tónleika í O2 Arena í London. Tónleikaferðalaginu lýkur 1. september.
Hér fyrir neðan má sjá téð myndband en viðkvæmir eru varaði við myndefninu.