Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson blaðamenn á Morgunblaðinu ræddu vinnustað sinn í síðasta þætti Spursmála, sem sá síðarnefndi stýrir, á vef blaðsins. Veltu þeir félagarnir fyrir sér þeirri lífseigu umræðu að Morgunblaðið og þar með þeir sem starfsmenn þess væri hlutdrægur fjölmiðill sem legði sig ekkert sérstaklega mikið fram við að bregða upp eins sannri mynd af þjófélaginu eins og mögulegt sé, en beitti sér fremur með áróðursskrifum til að hafa áhrif á gang mála.
Andrés og Stefán Einar furða sig á því að vera sagðir hlutdrægir - „Það er auðvitað gríðarleg umræða og harkaleg“